Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 9
btirídur Síjttrdird.
Jrk aUaaumldnefnd.
LímtrésverksmiÖjan, sem starfrækt er aö Flúðum í
Hrunamannahreppi er aö hluta eign nokkurra sveitarfélaga,
þar á meðal Biskupstungnahrepps. Ætlunin hefur verið,
aö ef hægt verður að efna til iðnaðar í tengslum við verk-
smiðjuna, þá verði reynt að staðset ja þann iðnað í nágranna-
sveitunum.
Atvinnumálanefnd. Biskupstungna barst fyrir stuttu
erindi frá Límtrá h/f, þar sem vakið er máls á að við
framleiösluna í verksmiðjunni fellur til mikið efni og
afgangar, sem gott væri að geta nýtt til einhvers iðnaðar.
Guömundur Magnússon á Flúðum hefur framleitt nokkuð
af smáhlutum úr límtrásafgöngum til reynslu. Þessi sýnis-
horn voru send atvinnumálanefnd og sú hugmynd lögð fram
að við framleiðslu slíkra smáhluta úr límtrásafgöngum,
þyrfti ekki mikinn eða dýran válakost eða stórt húsnæði,
en trúlega ýæri þarna atvinna fyrir handlagið fálk.
Eins og er eru áhugasamir menn í sveitinni að vinna
hluti til reynslu. Annars er þetta mál allt á frumstigi,
en vissulega væri gaman ef heppnast gæti að reka slíkan
iðnað hár.
Ef einhverjir hafa áhuga á þessu, þá ættu þeir að
ræða við atvinnumálanefndina.
Þuríður Sigurðardáttir