Litli Bergþór - 24.02.1984, Side 10
£íll
-8-
dU5Ír Ji
uiiommcnn.
ÞaÖ er ofarlega í hugum flestra Islendinga, sölarleys-
ið síðastliöið sumar. ÞaÖ hefur alla vega oft borið á góma
í heita pottinum á mánudagskvöldum, en þar mæta fölir og
nær litlausir kroppar, eftir aö hafa teygt sig og hrist í
kvennaleikfiminni.
ViÖ sem stundum þessa tíma, höfum mikinn hug á að
bæta úr þessu litleysi og stuðla að því að keypt verði
ljósasamloka. Slíkar 1josasamlokur kosta nýjar frá ca.
8O.000, en af og til hefur verið framboð á eldri samlokum,
sem eru mun ódýrari. Það má ætla að slík samloka sé 1-2 ár
að borga sig, en það fer auðvitað eftir verði lampans og
notkun, hve fljótt það gengur. Tíminn í slíkum lömpum er
núna ca. 60 kr.
Eins og lög gera ráð fyrir vantar peninga í þetta
fyrirtæki. Við sem höfum stundað leikfimina, erum þegar
byrjaðar að safna, en það dugir samt.-iekki langt. Ætlunin er
að kynna málið fyrir hreppsnefnd og sundlauganefnd og
kanna undirtektir. Allur stuðningur vel þeginn.
Hagnaðinn af slíkum lampa, ef af yrði, mætti svo
nota til að byggja upp gufubaðstofu, sem er reyndar gamall
draumur Tungnamanna, eða til kaupa a íþróttatækjum.
Allir sem áhuga hafa á brúnum kroppum, hafi samband við
Ingu Stefánsdóttur síma 6864
Margréti Sverrisdóttur " 6883
Sigríði J. Sigurfinnsd. " 6905
3^
Þó að ekki sé komið vor er ég nú samt farin að huga að
útplöntun. Á hverju ári fær Ungmennafélagið trjáplöntur
sem flestar hafa verið gróðursettar við Tungnaréttir, en
nú er svo komið að allt er að fyllast þar svo við þurfum að
huga að öðrum stað. Við auglýsum hér með eftir landi sem
hentar vel til skógræktar. Trjátegundirnar sem við fáum
eru greni, fura og lerki,að öllu obreyttu.
Allar ábendingar vel þegnar.
F.h. skógræktarnefndar.
Margrét Sverrisdóttir
o
o