Litli Bergþór - 01.11.2006, Qupperneq 6
Oddur Sigurðsson frá Bjamastöðum í Grímsnesi,
félagi í Ungmennafélagi Laugdæla. Sveit hins
síðarnefnda sigraði og hlaut að launum farandbikar,
sem kenndur er við Sigurð Greipsson, fyrrum
skólastjóra íþróttaskólans í Haukadal. Einnig voru
nokkur hross og einn kálfur seld á uppboði. A
undan og eftir var almennur söngur undir stjórn
Einars Geirs Þorsteinssonar frá Vatnsleysu. Þessa
nutu margir gestir í logni og sólskini.
Viku síðar fóru 11 til kvaddir leitarmenn á fjall
auk tveggja sem sáu um matreiðslu og flutning
farangurs og nokkurra sjálfboðaliða. Þeir leituðu í
6 daga allt frá afréttargirðingu á mörkum við efstu
jarðir að varnargirðingu á Kili. Bjartviðri var og
hlýindi alla dagana, en þeir fundu enga kind.
Garðyrkja hér í sveit felst aðallega í ræktun á
tómötum, papriku, gúrkum og afskornum blómum í
gróðurhúsum. I sumar voru eins og í fyrra ræktuð
pottablóm í um 2.000 fermetra gróðurhúsi í
Reykholti. Komið er með um tveggja mánuða
plöntur að vorinu en farið með þær aftur til
Hollands eftir fjögurra mánuða dvöl hér. Haft hefur
verið eftir starfsmanni fyrirtækisins, sem rekur
þessa starfsemi, að unnt sé að rækta þama um 240
þúsund plöntur í einu.
Korn var ræktað á allt að 10 bæjum hér í sveit í
sumar. Það þroskaðist fremur seint vegna vorkulda,
en tókst að skera það í góðu tíðinni síðast í
september og október þrátt fyrir að tíðar bilanir
kornskurðarvélar tefðu.
í október voru flutt í sveitina nær 1.000 lönib,
sem níu bændur keyptu vegna fjárskiptanna. Voru
þau sótt í Reykhólahrepp, Strandasýslu og Öræfi.
Af lömbunum voru um 50 hrútar, og var tekið sýni
úr þeim langflestum til að kanna arfgerð þeirra með
tilliti til hve næmir þeir eru gagnvart riðu. Sýni
voru á einum bæ einnig tekin úr gimbrunum í sama
tilgangi. A yfir 20 bæjum, þar sem skorið var
niður, var ekki tekið fé í haust. A mörgum þessara
bæja voru fáar kindur.
Skyttur sveitarfélagsins unnu níu tófurgreni í vor
og sumar. Þau voru flest í byggð, ekkert í
þjóðlendu, það nyrsta á Tunguheiði. Alls skutu þeir
12 fullorðin dýr við þau og 37 yrðlinga auk þriggja
hlaupadýra, sem höfðu orðið fyrir bílum.
Hestamannafélagið Logi á að fá fimm milljónir
af 330 milljónum króna, sem
Landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að veita til
byggingar reiðhúsa, til að byggja reiðskála í
Reykholti. Bygging þessi mun eiga að rísa vestan
við hesthúsin við Fellsgil.
Ný fjós hafa verið fullgerð í Bræðratungu og á
Drumboddsstöðum 1. Nokkrir bændur,
sem tóku fé í haust eftir niðurskurð, hafa
endurnýjað fjárhús sín að hluta og nýtt fjárhús hefur
risið á Hvítárbakka. Nokkur gömul fjárhús hafa
verið grafin.
Grunnskóli Bláskógabyggðar var settur 21.
ágúst. Starfsemi hans fer fram að Minni-Borg í
Grímsnesi, á Laugarvatni og í Reykholti.
í stærðfræðikeppni framhaldsskólanema í
haust sigraði Ögmundur Eiríksson í Gýgjarhólskoti
í flokki þeirra sem eru í tveimur neðri bekkjum
skólanna, en hann er í öðrum bekk Menntaskólans
að Laugarvatni.
Stjórn Skálholts tilkynnti sóknarnefndum í
Skálholtsprestakalli í september að ákveðnar hefðu
verið skipulagsbreytingar þar, sem m.a. fælu í sér
að staða organista í núverandi mynd yrði lögð niður
og því væri Hilmari Emi Agnarssyni sagt upp
störfum. Þetta olli verulegri óánægju meðal
sóknarbama og fleiri. Samningaviðræður milli
stjómar Skálholt og Hilmars Amar standa nú yfir.
Á fyrstu helgi október var Skálholtskirkja lýst
með bleikum ljósum til að vekja athygli á baráttu
gegn brjóstakrabbameini.
Síðast í október héldu tveir kórar, Valskórinn í
Reykjavík, sem Bára Grímsdóttir stjómaði, og
Skálholtskórinn undir stjórn Hilmars Amar
Agnarssonar, tónleika í Aratungu.
í byrjun nóvember var menningarkvöld á Kaffi
Kletti í Reykholti. Það var nefnt Tungnatittir og
tvær úr Tungunum, og skemmtu Bjarni Harðarson á
Selfossi og Egill Jónasson í Hjarðarlandi þar með
gamansögum, vísum og söng.
Brotist var inn í Reykholtsskóla,
Iþróttamiðstöðina og Aratungu í byrjun nóvember.
Litlu var stolið en viðgerð á skemmdum í skólanum
munu kosta hundruð þúsundir króna.
A. K.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASÍMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 6