Litli Bergþór - 01.11.2006, Side 7

Litli Bergþór - 01.11.2006, Side 7
/ Saga og afmæli Alfaborgar Leikskólinn Álfaborg átti 20 ára afmæli í haust. Hann var stofnaður af foreldrum haustið 1986. Þá störfuðu tveir starfsmenn og að auki skiptust foreldrar á að vinna. Opið var þrjá daga í viku kl. 13 - 17. Þá var leikskólinn staðsettur í Skálholti. Þrem árum síðar fluttist starfsemin í Birkilund og þaðan í gamla skólahúsnæðið í Reykholti. Þar er leikskólinn enn til húsa. Árið 1999 var opnað á milli skólans og í litla kennaraíbúð sem er áföst gamla skólanum og haustið 2004 var opnað í stærri fbúðina, sem einnig er byggð við skólann. Haustið 1990 tók Biskupstungnahreppur við rekstrinum og árið 1991 var tekin upp átta tíma vistun. Þá bættist við heitur matur í hádeginu frá skólamötuneyti. Leikskólinn var lokaður allt sumarið. Árið 2002 styttist sumarfrí í sex vikur og er það þannig enn í dag. Lágmarksaldur bama var tveggja ára þar til haustið 2005, þá voru tekin inn 18 mánaða böm. Þá varð Álfaborg tveggja deilda leikskóli. í fjöruferð á Stokkseyri. Þróun Álfaborgar Ef litið er yfir síðustu 13 árin, sem undirrituð hefur starfað, hefur þróunin verið þannig að sífellt fleiri kjósa að hafa bömin allan daginn í leikskólanum. Haustið 1993 voru tveir starfsmenn á morgnana en fjórir eftir hádegi. Þá voru mörg börn sem komu kl. 13 og voru til kl. 17. Nú eru fimm starfsmenn, bæði fyrir og eftir hádegi og að auki starfsmaður í eldhúsi og leikskólastjóri. Á þessum árum hefur ýmis konar pappírsvinna aukist töluvert. Meiri kröfur eru gerðar á starfsfólk leikskólanna. Nú er leikskólinn fyrsta skólastigið og við leggjum okkur fram við að vinna samkvæmt því. Starfsfólk leikskólans fer á námskeið til að fylgjast með leikskólamálum og síðustu þrjú árin hafa verið haustþing á Selfossi fyrir alla starfsmenn leikskóla á Suðurlandi. Þar velur hver og einn fyrirlestur eftir sínu áhugasviði, s.s. jóga, lífsleikni, tónlist, stjórnun, skapmikil börn o.fl. Almenn ánægja er með haustþingið hjá leikskólafólki. Söl i S a arsson Brattholti, Daníel Máni Óskarsson Kistuholti 2 og Porfinnur Freyr Þórarinsson Spóastöðum í Stokkseyrarfjöru. Skólanámskrá, námssvið Árið 2002 var gefin út fyrsta skólanámskráin og haustið 2005 var gefin út önnur námskrá, ný og endurbætt. Við vinnum með sex námssvið samkvæmt námskránni okkar sem eru; hreyfing, málrækt, tónlist, myndsköpun, náttúra og umhverfi, menning og samfélag. Fjögurra og fimm ára bömin fara í íþróttahús í íþróttir einu sinni í viku. Áður en íþróttahúsið kom var íþróttakennslan í Aratungu. Það var mikil breyting til batnaðar að fara í íþróttahúsið. Þar er fullt af skemmtilegum tækjum og margir möguleikar. Við leggjum mikla áherslu á málörvun í ýmis konar formi. Það nýjasta er Tákn með tali. Það er, eins og liggur í orðunum, talað og einnig notuð tákn. Það er góður stuðningur fyrir börn sem eru með seinkaðan málþroska og einnig fyrir börn sem eru að byrja að tala. Elstu börnin fara í hljómpróf. Það skoðar hljóðkerfisvitund barna, sem hefur ákveðið forspárgildi um hvemig börnum gengur í lestramámi. Við syngjum mikið í Álfaborg og velja börnin hvaða lög á að syngja. Við erum líka með tónlistarstundir fyrir eldri deildina þar sem bömin 7 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.