Litli Bergþór - 01.11.2006, Síða 8

Litli Bergþór - 01.11.2006, Síða 8
Krabbi úr fjörunni. fá að spila á hljóðfæri, æfa sig að slá takt, dansa o.fl. Myndlistartímar eru einu sinni í viku. Þá eru unnin ýmis konar þemaverkefni. Börnin klippa, mála, líma, teikna o.fl. Einnig er unnið með pappamassa, gifs, leir og fleiri efni. Stundum eru gerðar tilraunir með blöndun lita og efna. Sköpunargleði barnanna fær útrás og þau fá tækifæri til að vinna að skemmtilegum verkefnum. Allir fá hrós fyrir listaverkin sín. Náttúran er skoðuð í nánasta umhverfi okkar og stundum er safnað efnivið í verkefni. Við ræðum um dýr, plöntur, árstíðir og skoðum smádýr í umhverfi leikskólans. Leikurinn Við kennum bömunum gegnum leik. Þau finna ekki fyrir því að þau séu að læra. Það heyrist stundum þegar böm eru spurð; Hvar lærðir þú þetta? Þá segja þau; Ég kunni það bara. í gegnum leikinn læra börnin félagsleg samskipti. Þau læra að deila hlutum og taka tillit til annarra. Sem dæmi má nefna þegar við kennum þeim stærðfræði, þá teljum við bömin, þau eru spurð; hvað eru margar stelpur, hvað eru margir strákar, hversu margir krakkar eru núna? Vantar einhvern í dag? Börnin eru spurð; Hvað er meira Á leiðinni heim úr fjörunni; Perla María Karlsdóttir, Miðholti 15 og Karl Jóhann Einarsson, Haukadal. í Álfaborg höldum við í ákveðnar hefðir sem hafa orðið til gegnum árin. Við bökum piparkökur með foreldrum fyrir jólin og höfum jólaball. Á öskudaginn er náttfataball. Þá er dansað, sungið og „kötturinn“ sleginn úr tunnunni. Á vorin höldum við vorhátíð. Þá er myndlistasýning á verkum bamanna og skemmtiatriði s.s. söngur, leikrit o.fl. Foreldrafélagið sér um veitingar og hlutaveltu, sem er mjög vinsæl hjá börnunum. Agnes Sigurðardóttir, Kjóastöðum 3 og Rósa Kristín Jóhannesdóttir, Brekku. en, og minna um leið og leikið er með kubba eða önnur leikföng. Grunnformin eru sýnileg á vegg þ.e. hringur, ferningur, þríhyrningur og tígull. Börnin fara í röð og þá þarf að huga að því hver er fyrstur, síðastur, í miðjunni o.s.frv. Þarna fléttast einnig inn hugtakaskilningur. Samstarf leikskóla og grunnskóla. Vorið 1998 fóru starfsmenn úr báðum skólum á námskeið sem hét; Brúum bilið. Þar var kynnt hvernig unnið var að samstarfi milli skólastiga. Til að gera langa sögu stutta þá jókst áhugi þessara starfsmanna enn frekar á málinu og ákveðið var að byrja með skiptiheimsóknir um haustið. Þá fóru elstu börnin úr leikskólanum í heimsókn í grunnskólann og yngstu bömin úr grunnskólanum komu yfir í leikskólann. Þessar skiptiheimsóknir voru í nokkra vetur og gengu vel. Nokkrar úrtöluraddir heyrðust um að grunnskólabömunum þætti smábarnalegt að fara aftur í leikskólann en það var alls ekki. Þau biðu spennt, ekki síður en litlu börnin, eftir að röðin kæmi að þeim. Síðustu ár hefur samstarfið breyst þannig að elstu börn leikskólans fara einn morgun í viku í grunnskólann, Litli Bergþór 8

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.