Litli Bergþór - 01.11.2006, Page 9
Talið frá instri; Hera Sif Kristinsdóttir Kistuholti 15, Jóhann Sigurður
Andersen Kistuhoti 14a, Sigurður Sœ ar Ásberg Sigurjónsson Miðholti 2
og Guðrún Birna Þórarinsdóttir Réttarási 9.
Foreldrafélag Álfaborgar hefur hjálpað
til við ýmsar uppákomur. Nokkrir
foreldrar settu upp kastalann sem
kvenfélagið gaf á sínum tíma og einnig
settu foreldrar upp jafnvægisslá og
vegasalt.
í haust safnaði Foreldrafélagið fyrir
þumkskáp og áður hafði það gefið
leikskólanum flaggstöng. Mörg böm í
Biskupstungum hafa gefið leikskólanum
dótið sitt og bækur sem þau hafa sjálf
hætt að nota. Einnig hefur verið gefið
föndurefni, svo sem pappír og garn.
Fleira væri hægt að nefna en hér verður
látið staðar numið. Ég vil nota tækifærið
og þakka öllum þeim fjölmörgu sem
hafa hugsað hlýlega til leikskólans og
sýnt það í verki, hvort sem er með
hlýjum orðum, hjálpsemi eða gjöfum.
Þúsund þakkir.
en grunnskólabörnin koma ekki
lengur í leikskólann. Heimsóknir
í grunnskólann auðvelda
leikskólabörnunum skólabyrjun á
haustin. Bömin kynnast skólanum
og aðlagast þeim reglum sem þar
gilda.
Þakkir
Kvenfélag Biskupstungna
hefur í gegnum árin gefið
leikskólanum góðar gjafir sem
hafa nýst mjög vel. Má til dæmis
nefna lítið sófasett sem hefur
verið mikið notað í dúkkukrók í
mörg ár. Kastalann og lítið hús
sem eru í garðinum gaf
Kvenfélagið einnig og 100.000
kr. í tilefni af 20 ára afmælinu.
Danssýning í Aratungu 24. okt. 2006.
Heiinildaskrá:
Elinborg Sigurðardóttir: Þróunar erkefni. Sköpum tengsl á milli skólastiga. Júní 2001.
Sigrún Elfa Reynisdóttir: Stofnun leikskóla í Biskupstungum Litli Bergþór 19.1. 1998
Skólanámskrá Álfaborgar. Útg. 2005
S anhildur Eiríksdóttir, leikskólastjóri.
9 Litli Bergþór