Litli Bergþór - 01.11.2006, Page 11
Búdapestferð
Kvenfélags Biskupstungna
Það var á vordögum að skipuð var ferðanefnd í
Kvenfélaginu með það að markmiði að koma okkur
kellunum út fyrir landsteinana. Þessi nefnd taldi sig
hafa nokkra mánuði til að sinna þessum málum, þar
sem við færum aldrei að þvælast neitt fyrr en á
næsta ári, en annað kom í ljós. Nýkjörnum
formanni, Margréti Annie, fannst við heldur rólegar
í tíðinni þannig að fljótlega var gengið í það að
panta ferð til Búdapest í Ungverjalandi dagana 6,-
10. október. Þátttaka varð framar öllum vonum því
að alls skráðu sig 28 konur í ferðina.
Ferðanefndin á Hetjutorginu; Sigrún á Engi,
S a a í Höfða og Sigríður Jónína í Hrosshaga.
Það var svo aðfaranótt 6. október að ævintýrið
hófst. Við áttum að vera mættar í Keflavík kl.
fimm um morguninn þannig að við urðum að leggja
af stað að heiman um miðja nótt og það var eitthvað
misjafnt hvort konur gáfu sér tíma til að leggja sig
áður en þær héldu af stað. Einn eiginmaðurinn,
Jakob Hjaltason í Laugarási, var svo elskulegur að
keyra kvennaskarann til Keflavíkur í rútu sem lagði
af stað úr Laugarási um hálfþrjú um nóttina.
Við vorum tvær og tvær saman í herbergi og það
voru glaðbeittar konur sem leituðu uppi „maka“
sinn á flugvellinum. í loftið komumst við, nokkum
vegin á réttum tíma, með leiguflugvél á vegum
Heimsferða sem lenti í Búdapest kl. eitt um daginn
að staðartíma. Þar var 20 stiga hiti, hægur andvari
og sól. Hélst veðrið þannig alla dagana sem við
stöldruðum við. Þá vorum við svo heppnar að
mistur var með minna móti þessa daga, að sögn
fararstjórans, þannig að við fengum gott útsýni yfir
borgina.
Lararstjórinn sem fylgdi okkur heitir Maríanna,
foreldrar hennar flúðu til íslands 1956 frá
Ungverjalandi. Hún er fædd og uppalin á Islandi,
er hjúkrunarfræðingur að mennt og mun hafa
starfað um tveggja mánaða skeið á heilsugæslunni í
Laugarási á árum áður. Hún tók á móti okkur á
flugvellinum og fylgdi okkur í skoðunarferðir og
skilaði okkur síðan út á flugvöll aftur að dvöl
lokinni. Línn fararstjóri, fróð og skemmtileg.
Við dvöldum á Hótel Mercure Korona sem
stendur við Kalvin torgið í miðbæ Búdapest. Þaðan
er stutt að fara á helstu staði s.s. göngugötuna,
Gellert heilsuböðin, þjóðminjasafnið o.fl. Við
komum okkur fyrir á hótelinu og síðan gerði hver
það sem henni sýndist þar sem ekkert var skipulagt
þennan dag. Llestar fóru eitthvað út að skoða
borgina, t.d. lögðu margar konur leið sína á
göngugöturnar.
Um kvöldið hittumst við í anddyri hótelsins, þar
settumst við niður og kynntum okkur hver fyrir
annarri þar sem við þekktumst ekki allar. Eitt af
markmiðum ferðarinnar var að hrista konurnar í
félaginu betur saman og var þetta liður í því. Síðan
borðuðum við saman í matsal hótelsins. Tókum við
langflestar á okkur náðir með fyrra fallinu þetta
kvöld þar sem dagurinn var orðinn býsna langur.
En það var nú aldeilis ekki meiningin að fara til
Búdapest til að sofa þannig að á fætur var farið
snemma morguninn eftir og haldið í skoðunarferð
um borgina í fylgd Maríönnu, sem byrjaði á að sýna
okkur Hetjutorgið þar sem eru styttur af helstu
hetjum Ungverja, þaðan var farið og keyrt framhjá
Stefánskirkjunni, einhversstaðar sást glitta í stærsta
bænahús gyðinga í Evrópu og síðan var keyrt að
þinghúsinu sem er mjög fallegt. Einhver áhöld
voru um hvort við fengjum leyfi til að keyra
11 Litli Bergþór