Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 18
Þórarinn og Þorfmnur urðu að sœkja hitavatnsdœluna og
fara með hana til Sigmars Sigfússonar í Laugarási til
þurrkunar kvöldið 28. febrúar þar sem það flœddi inn í
dœluskúrinn. (Ljósmyndari Þorfmnur Þórarinsson)
Hverfum 48 ár aftur í tímann og hlýðum á lýsingu
Björns Erlendssonar í Skálholti, fréttaritara
Morgunblaðsins, á atburðinum:
„Vöxturinn íBrúará mun vera hvað mestur... en þar
brast gamla brúin hjá Spóastöðum um kl. 10.30 í
morgun. Mun vatnið smá saman hafa grafið undan
vesturstöpli brúarinnar, og tveir menn, sem voru staddir
þarna um þetta leyti, tóku eftir því að brúin var byrjuð
að ramba til. Svo brast hún skyndilega og barst nokkra
metra niður með ánni. Brú þessi var byggð árið 1921,
gerð úrjárni á steinstöplum, og var henni lokað fyrir
allri umferð í desember s.l., þegar nýja brúin var tekin í
notkun. Nýja brúin mun þó ekki vera í hœttu, en hins
vegar eru líkur á að vatnið grafi í sundur veginn, sem
liggur að brúnni, en hann er um 4-5 metrar að hœð. “I6
Eftirtektarvert er að ekki er í fljótu bragði að finna
neinar aðrar fregnir af falli gömlu brúarinnar og svo
virðist sem að almenningi og fjölmiðlum hafi annað
hvort ekki fundist merkilegt að gömul aflögð brú skyldi
falla í á eða að ekki hafi gefist tóm til veita þessu athygli
í þeim hamförum sem þessi flóð óneitanlega voru fyrir
allt Suðurlandsundirlendið.
Brúin fellur
Mennimir tveir sem Björn nefnir í frásögn sinni voru
þeir Sigmar Sigfússon og Þorfinnur Þórarinsson. Sigmar
hafði orðið forvitinn um brúna vegna lýsinga feðganna á
aðstæðum við Brúarárbrú og kom því þennan morgun
með myndavél til að mynda aðstæður. Sigmar kom fyrst
við á Spóastöðum enda þeir Þorfinnur ágætis kunningjar
og á þessum tíma lá vegurinn í gegnum hlaðið á
Spóastöðum. Þetta varð til þess að Þorfinnur ákvað að
fylgja Sigmari til brúarinnar enda forvitinn sjálfur að sjá
hvort aðstæður hefðu breyst.
Þeir stöðva bílinn efst í brekkunni við afleggjarann
niður að gömlu brúnni og fara út til að virða fyrir sér
flóðið. Þeir sjá þá að það er komið los á stöpulinn undir
Hér má sjá myndaröð sem Sigmar Sigfússon
smellti af í flýti þegar þeir Þorfinnur sáu brúna
hverfa í ólgandi strauminn. Það sést greinilega að
brúin fer a.m.k. eina veltu í ánni og við það losnar
steypta brúargólfið úr brúnni og hafnar á
árbotninum þar sem það er enn í dag.
(Ljósmyndari: Sigmar Sigfússon, Sigríður Pétursdóttir)
Litli Bergþór 18