Litli Bergþór - 01.11.2006, Qupperneq 19

Litli Bergþór - 01.11.2006, Qupperneq 19
Hér má sjá vegmerkingamar sem Vegagerð ríkisins setti upp þegar hún lokaði fyrir umferð um gömlu brúna í desember 1967. (Ljósmyndari Þorfinnur Þórarinsson) brúnni fjæí og hann er tekinn að losna frá veginum. Vatn gutlar þar um. Allt í einu er eins og undirstöðunum sé kippt undan brúnni Selsmegin og brúin sekkur beint niður og fer nánast alveg á kaf. Hún sópast svo til hliðar og þá slitnar handriðið Spóastaðarmegin með háum smelli. Brúin veltur síðan niður ána og gólfið losnar úr jámvirkinu sem rúllar hins vegar áfram niður ána og þegar lækkaði í ánni kom það í ljós að miklu leyti uppi á árbakkanum Selsmegin.17 Sumarið eftir sótti vegagerðin járnið og það var keyrt suður. Um leið var vegstubbnum ýtt upp í veginn sem lá að nýju brúnni en steypta brúargólfið var látið eiga sig þar sem það lá á árbotninum Tungnamegin. Eftirmáli Það vakti furðu mína að ekkert skyldi sýnt frá hruninni brúnni í þeim blöðum sem ég fletti frá þessu tímabili. Að vísu skal ég fúslega viðurkenna að könnun mín var ekki tæmandi og eitthvað kann mér að hafa sést yfir. í raun Síðar um morguninn sótti Þotfinnur myndavél til aðfesta aðstœður á fdmu. Með honum íför var þá Guðjón Guðjónsson frá Tjörn, sem þá var vinnumaður á Spóastöðum, sem hér Stendur á brúarsporðinum. (Ljósmyndari Þotfinnur Þórarinsson) fannst einungis ein frétt frá brúnni fallinni og hana má finna í Suðurlandi 8. júní 1968 þar sem sjá má mynd af leifum brúarinnar og örlitla umfjöllun. Sennilegt er að almenningi hafi ekki fundist það merkilegt að gömul aflóga brú skyldi hrynja í þessum hamförum. Slfkt hefur þó verið tálsýn. Ef marka má orð Björns Erlendssonar þá var brúnni ekki lokað fyrr en í desember 1967, þ.e. rétt um tveim mánuðum áður en brúin brast. Hvergi kemur fram að menn hafi óttast um öryggi brúarinnar. Einungis er talað um að hálka í Klifinu, þröng brúin og kröpp beygjan út af brúnni hafí staðið umferð fyrir þrifum og því verið nauðsynlegt að byggja nýja brú. Sömuleiðis kemur í ljós að ætlunin var að reisa brúna við aðra hentuga sprænu. Síðast en ekki síst bendir frásögn Þorfinns til þess að hefði fallið meir Þessi mynd af járnvirki brúarinnar hefur sennilega verið tekin fljótlega eftir að brúinféll. Ekki erfyllilega sjatnað í ánni og snjór sést enn í Mosfelli. Þá þegar hefur fréttin þótt lítt merk því hún birtist ekki í Suðurlandi fyrr en 8. júní. (Ljósmyndari ókunnur, Héraðsskjalasafn Árnesinga.) úr vegkantinum við nýju brúna þá hefðu menn ekið gömlu brúna líkt og áður. Allt þetta vísar til þess að uppsveitamenn hafi verið ótrúlega lánsamir að hafist var handa við byggingu nýrrar brúar og henni lokið árið 1967. Annars hefði þessi umfjöllun getað verið á mun válegri nótum. 1 dag má sjá brúargólfið liggja á botni árinnar u.þ.b. 25 m frá brúarstöplinum. Þetta er einungis hluti gólfsins og er um þrír metrar að lengd. Endinnfjœr bakkanum virðist beinn þvert yfir en sá sem liggur við bakkann er illa brotinn og taka má á steypustyrktarjárninu ogfuina hvernig undist hefur upp á það í hamförunum 1968. (Ljósmyndari Skúli Sœland.) ‘Nýja brúin’ heyrir nú brátt sögunni til. Líkt og sú gamla þykir hún nú orðin óhentug til umferðar því hún er einbreið og fengist hafa fjárveitingar til byggingar nýrrar brúar á næsta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist annað hvort um vorið eða haustið og verður væntanleg brú reist á sama stað og ‘nýja’ brúin er í dag. Samhliða brúarsmíðinni verður lögð bráðabirgðarbrú mitt á milli brúarstæða ‘gömlu’ og ‘nýju’ brúanna. Við skulum vona að í þetta skipti muni sagan ekki endurtaka sig með viðlíka hamförum og þegar gamla brúin brast. 19 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.