Litli Bergþór - 01.11.2006, Síða 21
Sigurjónsdóttur. dags. 2. maí 2006, þar sem sótt er
um að taka á leigu íbúðina Kistuholt 3d. Byggðaráð
leggur til að þeim verði úthlutað íbúðin frá og með
1. ágúst 2006. Margeir Ingólfsson vék af fundi
undir þessum lið.
Tillaga að brevtingu á Aðalskipulagi
Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Efri-
Reykja. Tillagan gerir ráð fyrir að landnotkun á
svæði sem liggur norðan Laugarvatnsvegar og
afmarkast af tveimur svæðum fyrir frístundabyggð
að austan og vestan, verði breytt úr
landbúnaðarnotum í svæði fyrir frístundabyggð.
Byggðaráð leggur til að umrædd breytingatillaga
verði auglýst í samræmi við 18. gr. Skipulags- og
byggingarlaga.
Bréf frá Svslumannsembættinu á Selfossi. dags.
16. júní 2006, þar sem óskað er heimildar til að
afskrifa útsvar hjá eignalausu dánabúi að upphæð
kr. 80.041-. Byggðaráð leggur til að heimildin verði
veitt.
Bréf frá Halldóri Páli Halldórssvni. skólameistara
Menntaskólans að Laugarvatni, dags. 13. júní 2006,
þar sem hann gerir Bláskógabyggð tilboð í
bókasafnsþjónustu. Byggðaráð vísar tilboðinu til
umsagnar hjá skólastjórum Grunnskóla
Bláskógabyggðar áður en afstaða verður tekin til
þess.
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. dags. 16.
júní 2006, varðandi reglubundið eftirlit í
íþróttamiðstöðinni í Reykholti. Byggðaráð leggur til
að umsjónamaður fasteigna í samstarfi við
sveitarstjóra geri áætlun um úrbætur í samræmi við
úttektina.
Bréf frá Vegagerðinni. dags. 20. júní 2006, þar
sem fram kemur að Bláskógabyggð hefur hlotið
styrk að upphæð kr. 2.000.000- vegna endurbóta á
vegtengingum við Lremstaver og Svartárbotna.
Bréf frá Sigurði Sigurðarsvni. dags. 22. júní
2006, þar sem fram kemur að landsvæði það sem
samþykkt var að auglýsa breytta landnotkun á, á
fundi byggðaráðs 25. apríl 2006, verður kennt við
Borgarhóla en ekki Skálholtstungu.
Afrit af bréfi frá Skipulagsstofnun, dags. 7. júní
2006, varðandi tillögu að breyttu aðalskipulagi í
landi Miðhúsa en samkvæmt tillögunni breytast 36
ha lands úr landbúnaðarsvæði í frístundasvæði.
Skipulagsstofnun mælir með því að tillagan verði
staðfest.
Uthlutun bvggingalóða.
1. Umsókn frá Nönnu Mjöll Atladóttur, kt.
191049-2259, þar sem sótt er um lóðina Bæjarholt
8, Laugarási. Samþykkt samhljóða.
2. Umsókn frá Sigurjóni Sæland, kt. 200369-
3489, þar sem sótt er um lóðina Miðholt 37,
Reykholti. Samþykkt samhljóða.
Afrit af bréfi Umhverfisstofnunar. dags. 15. júní
2006, varðandi breytingu á aðalskipulagi -
frístundabyggð við Laugarás. í bréfinu kemur m.a.
fram að stofnunin gerir athugasemd við það að
frístundabyggð vestan Skálholtsvegar er skipulögð
alveg niður að Hvítá en samkvæmt
skipulagsreglugerð skal þess gætt að ekki sé byggt
nær ám en 50 m. Byggðaráð bendir á að þó
skipulagt sé að Hvítá þá er ekki heimilt að byggja
nær ánni en 50 m og einnig að tryggja verður
umferð gangandi fólks með ánni. Auk þess telur
Umhverfisstofnun að ekki ætti að skipuleggja
fyrirhugaða frístundabyggð svo hátt upp í
Vörðufellið og gert er ráð fyrir. Byggðaráð vísar
þessari athugasemd áfram til landeigenda.
58. fundur byggðaráðs 25. júlí 2006.
Mætt voru Mcirgeir Ingólfsson, formaður í
fjarveru Sigrúna Lilju Einarsdóttur, Þórarinn
Þorfumsson, Drífa Kristjánsdóttir og Valtýr
Valtýsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Erindi Vigdísar Árnadóttur vegna námu í landi
Austureyjar.
Lagt fram bréf frá Vigdísi Ámadóttur, dags. 5.
júlí 2006, sem ritað er fyrir hönd félags
sumarbústaðaeigenda í Utey, nýja hverfinu. í
bréfinu er óskað eftir því að náma í landi
Austureyjar, sem staðsett er mjög nærri
frístundahúsahverfinu, verði lokuð. Jafnframt er
óskað eftir styrk til viðhalds vegar að sumarhúsum í
þessu frístundahúsahverfi.
Byggðaráð leggur til að ósk um fjárstyrk til
viðhalds vegar verði hafnað, þar sem sveitarsjóður
hefur ekki veitt slíka styrki.
Byggðaráð leggur til að komið verði á framfæri,
til landeiganda Austureyjar, þeim kvörtunum
bréfritara um ástand og frágang efnisnámunnar.
Byggðaráð leggur áherslu á að öryggismál vegna
frágangs efnisnáma sé ávallt í lagi, þannig að ekki
almenningi skapist ekki hætta af.
Uthlutun bvggingalóða.
Umsókn frá Atla Ólafssyni, kt. 211257-5639, þar
sem sótt er um iðnaðarlóðina Lindarskógur 11,
Laugarvatni. Samþykkt samhljóða.
Erindi eru lagt fram til kvnningar:
Bréf frá Sigríði Kristínu Gísladóttur ásamt
skýrslu um „Grunnskólabörn með langvinnan
heilsuvanda“. Skýrslan liggur frammi á skrifstofu
sveitarfélagsins.
61. fundur sveitarstjórnar 1. ágúst 2006.
Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn og Valtýr
Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Kosning í nefndir:
1. Æskulýðsnefnd; þrír aðalmenn og þrír til vara.
Aðalmenn: Sölvi Arnarsson, Hrísholt 10,
Laugarvatni
21 Litli Bergþór