Litli Bergþór - 01.11.2006, Síða 23

Litli Bergþór - 01.11.2006, Síða 23
Bleikjubær ehf. fái greiðslufrest á fasteignagjalda- skuld fyrirtækisins við Bláskógabyggð. Byggðaráð leggur til að sveitarstjóra verði falið að semja við eigendur Bleikjubæjar ehf. um greiðslufyrirkomulag gjaldfallinna fasteignargjalda. Endurskoðun á gjaldskrá mötunevta Bláskógabvggðar. Byggðaráð leggur til að gjaldskrá mötuneyta Bláskógabyggðar fyrir nemendur, aldraða og starfsmenn sveitarfélagsins hækki í samræmi við breytingu neysluverðsvísitölu frá 1. ágúst 2005 til 1. ágúst 2006, en það er 8,55 % hækkun. Einnig leggur byggðaráð til að gjaldskrá fyrir kostgangara hækki um 14 %. Breytingarnar taki gildi frá og með 1. september 2006. Endurskoðun á þóknun fvrir fundarsetu hjá Bláskógabvggð. Byggðaráð leggur til að þóknun fyrir fundarsetu fyrir kjörtímabilið 2006 - 2010 verði eftirfarandi: • Aðalmenn í sveitarstjórn fái greitt kr. 25.000 á mánuði og breytist þóknunin tvisvar á ári í samræmi við launavísitölu, miðað við 1. janúar og 1. júlí ár hvert og í fyrsta skipti 1. janúar 2007. Varamenn fái greitt 3 % af þingfarakaupi fyrir hvern setinn fund. • Fulltrúar í byggðaráði fái greitt 3 % af þingfarakaupi fyrir hvern setinn fund. Formaður fái greidda tvöfalda þóknun fyrir hvem fund. • Fulltrúar í öðrum nefndum Bláskógabyggðar, skv. samþykktum sveitarfélagsins, fái greitt 1,5% af þingfarakaupi fyrir hvern setinn fund. Formaður fái greidda tvöfalda þóknun fyrir hvem fund. • Fulltrúar í fræðslunefnd fái greitt skv. samstarfssamningi um skólamál sem í gildi er við Grímsnes- og Grafningshrepp. • Veitustjórn ákveður nefndarlaun fyrir fulltrúa í stjórn. • Skoðunarmenn fái greitt 4 % af þingfarakaupi á ári fyrir sín störf. • Oddviti og sveitarstjóri fá ekki greitt sérstaklega fyrir fundarsetu. • Akstur er almennt ekki greiddur vegna fundarhalda innan sveitarfélagsins. Þó er gert ráð fyrir því að jafna ferðakostnað innan sveitarfélagsins vegna fundarhalda með því að akstur umfram 300 km á ári verður styrktur skv. aksturstaxta RSK. Til þess að fá akstur greiddan og kostnað vegna funda utan sveitarfélagsins þarf viðkomandi að vera sérstaklega kjörinn fulltrúi sveitarfélagsins á þeim fundi. 62. fundur sveitarstjórnar 5. september 2006. Mœtt voru allir sveitarstjórnarmenn nema Snœbjörn Sigurðssona enfyrir hann Brynjar Sigurðsson. Einnig Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Fundargerð bvggðaráðs til staðfestingar: Fundargerð 59. fundar, dags. 29. ágúst 2006. Vegna 5. liðar í fundargerð þá er samþykkt eftirfarandi breyting: • Aðalmenn í sveitarstjórn fái greidda fasta mánaðarlega þóknun kr. 15.000 og að auki 3% af þingfarakaupi fyrir hvem setinn fund. Varamenn fái greitt 3% af þingfarakaupi fyrir hvern setinn fund. • Aðalmenn í byggðaráði fái greidda fasta mánaðarlega þóknun kr. 15.000 og að auki 3% af þingfarakaupi fyrir hvern setinn fund. Varamenn fái greitt 3% af þingfarakaupi fyrir hvern setinn fund. • Skoðunarmenn fái greitt 4% af eins mánaðar þingfarakaupi á ári fyrir sín störf. Að öðru leyti var fundargerðin staðfest samhljóða. Kosning f nefndir / ráð: Kjör fulltrúa í Fulltrúaráð Brunavarna Árnessýslu. Fulltrúar Þ-lista lögðu fram eftirfarandi tillögu: Aðalmaður: Snæbjörn Sigurðsson, Efsta-Dal. Varamaður: Margeir Ingólfsson, Brú. Fulltrúar T-lista lögðu fram eftirfarandi breytingartillögu: Aðalmaður: Kjartan Lárusson, Austurey I. Varamaður: Benedikt Skúlason, Kirkjuholti, Laugarási. Breytingartillagan var felld með 4 atkvæðum á móti (MI, SLE, ÞÞ og BS) en 3 atkvæði með (DK, KL, JS). Þá var tillaga Þ-listans borin upp og hún samþykkt með 4 atkvæðum (MI, SLE, ÞÞ, BS) en 3 sátu hjá (DK, KL, JS). Kjör fulltrúa á aðalfund Atvinnuþróunarfélags Suðurlands. Aðalmenn: Margeir Ingólfsson, Brú, Sigrún Lilja Einarsdóttir, Bjarkarbraut 4, Laugarvatni, Drífa Kristjánsdóttir, Torfastöðum. Varamenn: Þórarinn Þorfinnsson, Spóastöðum, Snæbjörn Sigurðsson, Efsta-Dal, Jóhannes Sveinbjörnsson, Heiðarbæ I. Samþykkt samhljóða. Skipulagsmál 1. Breyting á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012; Austurhlíð, Skotalda. Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000 - 2012 í landi Austurhlíðar. I breytingunni felst að núverandi svæði fyrir frístundabyggð ofan við bæinn Austurhlíð stækkar til suðurs. Svæðið kallast Skotalda og er þar gert ráð fyrir fjórum frístundahúsalóðum. Á einni lóðinni, þeirri syðstu, er hús þegar til staðar og er því að hluta til um leiðréttingu á afmörkun núverandi 23 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.