Litli Bergþór - 01.11.2006, Síða 24
frístundabyggðasvæðis að ræða. Samþykkt
samhljóða að auglýsa breytinguna skv. 1. mgr. 21.
gr skipulags og byggingarlaga, og skipulagsfulltrúa
falið að vinna málið áfram.
2. Breyting á aðalskipulagi Biskupstungna 2000 -
2012, Laugarás.
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Biskupstungnahrepps 2000 - 2012, Laugarási. í
breytingunni felst að verslunar- og þjónustusvæði
nærri Iðufelli verði breytt í svæði fyrir íbúðarbyggð,
merkt 1) á uppdrætti, sem unninn hefur verið af
Pétri H. Jónssyni í september 2006. Breytingin er
gerð til að mæta vaxandi eftirspurn eftir lóðum
undir fbúðarbyggð í Laugarási.
Samþykkt samhljóða að auglýsa breytinguna skv.
18. gr. skipulags- og byggingarlaga og
skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Samgöngumál.
Fulltrúar T-listans lögðu fram eftirfarandi tillögu:
Sveitcirstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að
byggðaráð láti gera úttekt á öllu gatnakeifi í
þéttbýli og heimreiðum í dreifbýlinu og að
kostnaðar og framkvæmdaáætlun verði gerð um
endurnýjun og viðhald þeirra.
Fulltrúar Þ-listans leggja fram eftirfarandi
breytingartillögu:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að láta
byggðaráð gera úttekt á því gatnakerfi sem tilheyrir
Bláskógabyggð og úttektin verði síðan notuð til að
vinna framkvœmdaáœtlun.
Breytingartillagan samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela
byggðaráði að koma á virkara samstarfi við árlega
endurskoðun safnvegaáætlunar innan
sveitarfélagsins og forgangsröðun verkefna.
Umhverfismál.
Fulltrúar T-listans lögðu fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að
taka á í umhverfismálum og að vinna samkvœmt
Staðardagskrá 21. Skipuð verði Staðardagsskrár-
nefnd sem geri tillögur að því hvað skuli gertfyrst.
Greinargerð: Umhverfismál eru til fyrirmyndar
á mörgum stöðum í sveitarfélaginu. Sumstaðar má
þó gera enn betur. Staðardagskrá 21 er verkfœri
sem gott er að nota til að taka á málum og gera
betur. Þannig koma íbúar og starfsmenn
sveitarfélagsins saman að verkefninu gera tillögur
um lagfœringar og hjálpast að við að ná árangri.
Samþykkt samhljóða að vísa þessari tillögu til
næsta fundar sveitarstjórnar.
Ljósafossskóli.
Oddviti gerði grein fyrir stöðu mála varðandi
sölu á skólahúsnæði fyrrum Ljósafossskóla. Ekki
liggur fyrir uppgjör vegna sölunnar ennþá, en þegar
það liggur fyrir mun Bláskógabyggð fá greiddan
sinn hluta skv. samningi milli Bláskógabyggðar og
Grímsnes- og Grafningshrepps.
Litli Bergþór 24 _________________________________
Umræða um starfssvið forstöðumanns
áhaldahúss.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir starfslýsingu
forstöðumanns áhaldahúss, auglýsingu og
vinnuferlum við ráðningu í starfið.
Innsend bréf og erindi:
Bréf frá ÍSÍ, dags. 24. ágúst 2006.
í bréfinu gerir ÍSÍ grein fyrir skipun vinnuhóps,
sem ætlað er að taka út stöðu minnihlutahópa í
íþróttahreyfingunni, s.s. innflytjendur,
samkynhneigða og fatlaða. Oskað er eftir
upplýsingum frá Bláskógabyggð hvort
sveitarfélagið hafi samþykktir er lúta beint að
minnihlutahópum.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu.
Bréf frá SASS, dags 28. ágúst 2006.
í bréfinu er gerð grein fyrir tilraunaverkefni til
þriggja ára um ráðningu iðjuþjálfa á starfssvæði
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Gert er ráð fyrir
að þetta verði samstarfsverkefni
Heilbrigðisstofnunarinnar, Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra og sveitarfélaganna / SASS. Gert er ráð
fyrir að sveitarfélögin standi undir 20% af árlegum
kostnaði verkefnisins, eða um 1 milljón króna á ári.
Óskað er eftir því að sveitarfélögin taki afstöðu til
verkefnisins þannig að fulltrúar Bláskógabyggðar
geti tekið afstöðu til erindisins á aðalfundi SASS
þann 7. og 8. september n.k.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir
samhljóða að taka þátt í verkefninu með fyrirvara
um að öll önnur sveitarfélög á starfssvæði
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands samþykki það
einnig.
63. fundur sveitarstjórnar 26. september 2006.
Mœttir voru sveitarstjórnarmenn nema Jóhannes
Sveinbjörnsson og Kjartan Lárusson enfyrirþá
Sylvía Sigurðardóttir og Pálmi Hilmarsson, einnig
Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði
fundargerð.
Erindi frá Skálholtsstað. dags. 14. sept. 2006.
Erindi Skálholtsstaðar er uppsögn á samningi
milli Skálholtsstaðar, sóknamefnda Skálholts-,
Torfastaða-, Bræðratungu- og Haukadalssókna og
Biskupstungnahrepps, dags. 10. maí 1995.
Sveitarstjóm samþykkir samhljóða eftirfarandi
bókun vegna uppsagnar fyrrgreinds samnings:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar harmar að stjórn
Skálholts skuli hafa tekið þá ákvörðun að segja,
einhliða og án samráðs, upp afhálfu
Skálholtsstaðar samningi um starf organista sem
undirritaður var 10. maí 1995. Þessi samstaða um
ráðningu organista, og það góða starfsem hann
hefur innt afhendi, hefur verið mikils virði fyrir
samfélagið. Uppsögn samningsins, á þessum
árstíma og án samráðs við samningsaðila, veldur
sveitarstjórn áhyggjum og hvetur hún alla sem að