Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 25

Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 25
málinu geta komið að leita lausna þannig að áfram muni vaxa og dafna öflugt söng- og menningarlíf í Bláskógabyggð. Sveitarstjórn felur Margeiri Ingólfssyni og Drífu Kristjánsdóttur að rœða við þá aðila sem málið varðar og leita leiða til að lausnar fyrir kirkjusóknirnar og kórastaif 60. fundur byggðaráðs 26. september 2006. Mœttir voru byggðaráðsmenn og Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Umsögn um kæru Péturs M. Jónassonar. dags. 26. júní 2006. Lögð var fram kæra Péturs M. Jónassonar, sem hann sendi umhverfisráðuneytinu, en ráðuneytið óskaði umsagnar sveitarstjómar. Vísað er til greinargerðar, ásamt viðauka, sem sveitarstjóm Bláskógabyggðar sendi frá sér þann 28. júní 2005 í kjölfar úrskurðar Sigríðar Önnu Þórðardóttur, þáverandi umhverfisráðherra, um umhverfismat Gjábakkavegar (365). Byggðaráð útfærir tillögu að umsögn, í samræmi við umræður sem fram fóru á fundinum, sem lögð verði fyrir næsta fund sveitarstjómar þann 3. október n.k. Umsögn skólastiórnenda varðandi skólabókasafn Grunnskóla Bláskógabvggðar á Laugarvatni. Vísað er til bókunar í lið 8 í fundargerð byggðaráðs 27. júní 2006, þar sem tekið er fyrir tilboð Menntaskólans að Laugarvatni vegna bókasafnsþjónustu. Fyrir liggur jákvæð umsögn skólastjómenda gagnvart tilboðinu, þ.e. þá liði þess sem snúa að þjónustu við Grunnskóla Bláskógabyggðar á Laugarvatni. Byggðaráð leggur til að tilboði Menntaskólans að Laugarvatni verði tekið enda muni eiga sér stað endurskoðun þessa samkomulags fyrir apríl 2007. Sveitarstjóra verði falið að útfæra samning við Menntaskólann sem grundvallast á þessu tilboði. Ráðning í starf forstöðumanns. þjónustumiðstöðvar Bláskógabyggðar. Sveitarstjóri lagði fram atvinnuauglýsingu, umsóknir um starfið og matsblað umsókna. Gerði hann grein fyrir umsóknum og viðtölum við umsækjendur. Byggðaráð samþykkir samhljóða að bjóða fyrst Halldóri Karli Hermannssyni starfið. Sveitarstjóra falið að leggja ráðningarsamning fyrir næsta fund sveitarstjómar til staðfestingar. Innsend bréf og erindi: Auðunn Árnason, dags. 1. september 2006, námsgjöld söngskóla. I erindinu er óskað eftir því að Bláskógabyggð greiði helming námsgjalda, kr. 150.000, vegna söngnáms Daníels Njáls Auðunssonar hjá Söngskólanum í Reykjavík. Byggðaráð leggur til að greiddur verði hluti námsgjalda við skólann, þ.e. að upphæð kr. 150.000. Jafnframt leggur byggðaráð til að menningarmálanefnd verði falið að móta tillögu að stefnu í þessum málum. Hrafn Magnússon. mótt. 5. september 2006, kurlun og förgun á trjám. Fyrir liggur tilboð frá Hrafni Magnússyni í kurlun og förgun trjáa sem berast á gámasvæði sveitarfélagsins. Markmið með þessu verkefni er að koma í veg fyrir óhagkvæman akstur og förgun á þessum úrgangi að förgunarstað í Kirkjuferjuhjáleigu og jafnframt að opna á þann möguleika að endurnýta hráefnið/afurðina. Byggðaráð lýsir yfir áhuga fyrir verkefninu og leggur til að leitað verði umsagnar hjá umhverfisnefnd sveitarfélagsins áður en endanleg afstaða verður tekin til tilboðsins. Jafnframt umsögn er óskað eftir því við umhverfisnefnd að hún komi fram með hagkvæmar hugmyndir varðandi framkvæmd þessa verkefnis með tilliti til aðstöðusköpunar m.m. 64. fundur sveitarstjórnar 3. október 2006. Mœttir voru allir sveitarstjórnrmenn nema Drífa Kristjánsdóttir en fyrir hana Hólmfríður Bjarna- dóttir, einnig Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Skipulagsmál l.Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000 - 2012; Borgarhólar. Skálholti. Einnig lögð fram umsögn Umhverfisstofnunar, mótt. 14. september 2006. Byggðaráð Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum 25. apríl 2006 að tillaga að breytingu á aðalskipulagi Biskupstungna 2000 - 2012, Borgarhólar, Skálholti, yrði auglýst skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga. Þessi samþykkt byggðaráðs var staðfest af sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 2. maí 2006. Þann 19. maí 2006 ritar Umhverfisstofnun Biskupsstofu bréf þar sem fram koma athugasemdir vegna fyrirhugaðrar breytingar á landnotkun skv. tillögunni. Skipulagsstofnun óskar eftir því við sveitarstjóm Bláskógabyggðar að hún svari framkomnum athugasemdum áður en hún heimili auglýsingu tillögunnar. Athugasemdir Umhverfisstofnunar eru í meginatriðum þríþættar: • Stofnunin telur að náttúrufari og fuglalífi geti stafað hætta af fyrirhugaðri frístundabyggð. • Borun eftir heitu vatni gæti haft áhrif á jarðhitasvæði við Skálholt. • Hugsanleg neikvæð áhrif á ásýnd vegna staðsetningar mannvirkja við svo sögufrægan stað sem Skálholt er. Jafnframt bendir Skipulagsstofnun á að umrætt 25 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.