Litli Bergþór - 01.11.2006, Page 27

Litli Bergþór - 01.11.2006, Page 27
að „Félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp til þess að fara yfir réttarstöðu eigenda og íbúa frístundahúsa samkvæmt þeim lögum sem nú eru í gildi.“ Fram kemur í greininni hverjir eru skipaði í nefndina. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar lýsir yfir undrun og áhyggjum gagnvart því að þau sveitarfélög sem hafa hvað flest sumarhús á sínu stjómsýslusvæði skuli ekki eiga fulltrúa í vinnuhópnum, þar sem umræðan mun að vemlegu leyti snúast um samskipti sumarhúsaeigenda og sveitarfélaga. Breyting á réttarstöðu sumarhúsaeigenda getur haft vemleg áhrif í sveitarfélögum eins og Bláskógabyggð, en í sveitarfélaginu eru u.þ.b. 2000 sumarbústaðir. 61. fundur byggðaráðs 31. október 2006. Mœtt: Margeir Ingólfsson, Þórarinn Þorfinnsson varamaður vegnafjarveru Sigrúnar Lilju Einarsdóttur, Drífa Kristjánsdóttir og Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Umsókn um byggingarlóð. Umsókn frá GRG vélar ehf. kt. 510906-1280 þar sem sótt er um athafnalóðina Vegholt 4 í Reykholti. Samþykkt samhljóða. Innsend bréf og erindi: Landsnet. dags. 11. september 2006, Umhverfisúttekt á Sultartangalínu 3. í bréfinu kemur fram að Landsnet óskar eftir því, að Bláskógabyggð tilnefni fulltrúa sinn í umhverfisúttekt á Sultartangalínu 3. Skipulagsfulltrúi hefur verið fulltrúi sveitarfélagsins á fyrri stigum. Búið er að fara í vettvangsferð vegna þessarar úttektar og var Pétur Ingi Haraldsson fulltrúi sveitarfélagsins í þeirri ferð. Byggðaráð leggur til að skipulagsfulltrúi verði áfram fulltrúi sveitarfélagsins við þessa vinnu. Landgræðsla rfkisins, dags. 5. október 2006, Bændur græða landið. Byggðaráð leggur til að áframhald verði á þátttöku í verkefninu Nefnd til aðgangs að opinberum gögnum um örvggismál. dags. 17. október 2006. Byggðaráði er ekki kunnugt um að Bláskógabyggð hafi í sinni umsjá opinber gögn sem varða öryggismál landsins. 65. fundur sveitarstjórnar 7. nóvember 2006. Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn nema Sigrún Lilja Einarsdóttir enfyrir hana Jens Pétur Jóhannsson. Einnig var mættur Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2006. Sveitarstjóri lagði fram tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar fyrir árið 2006, fyrri umræða. Aætlunin gerir ráð fyrir að heildartekjur samstæðu Bláskógabyggðar, þ.e. sveitarsjóðs og félaga í eigu sveitarfélagsins verið kr. 612.395.000. Rekstrargjöld samstæðu ásamt afskriftum kr. 560.126.000. Fjármagnsgjöld áætluð kr. 38.328.000. Rekstrarniðurstaða samstæðureiknings samkvæmt áætlun verður jákvæð að upphæð kr. 13.941.000. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar ársins vegna byggingaframkvæmda, gatnagerðar, fráveitu og vegna kaupa á athafnalóðum verði nettó kr. 65.100.000. Samþykkt að vísa breytingatillögunni til annarrar umræðu í sveitarstjórn. Húsaleiuubætur 2007. Sveitarstjóri lagði fram tillögu að auglýsingu um greiðslu húsaleigubóta hjá Bláskógabyggð fyrir árið 2007.1 auglýsingunni er gerð tillaga um að fjárhæðir húsaleigubóta verði þær sömu og grunnfjárhæðir sem ákveðnar eru í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu. Samþykkt samhljóða. SELÁS-BYGGINGAR ehf. Tilboðsgerð, viðhald, hurðir, gluggar, timbur-, íbúðar-, sumar og stálgrindarhús Hákon Páll Gunnlaugsson löggiltur húsasmíðameistari + byggingastj. Sími 486-8862/894-4142 netfang: hpgunn@binet.is fax: 486-8620

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.