Litli Bergþór - 01.12.2011, Side 32
Litli EJergþór:
Efnisskrá 1 930 -til 2008
Þrúða frænka mín í Miðhúsum bað mig að skrifa
nokkur orð um sjálfa mig og hvernig það atvikaðist
að „lyklun“ Litla-Bergþórs varð lokaverkefni mitt
við Háskóla íslands.
Ég bý í Austurey í Laugardal og rak þar kúabú
ásamt Snæbirni, eiginmanni mínum, í tæp 30 ár. Arið
2005 tókum við þá ákvörðun að hætta með kýrnar.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé alveg nóg að eyða
30 árum af starfsævi sinni í það að vera kúabóndi.
Þetta er skemmtilegt og gefandi starf, en afar bind-
andi.
Þá var næsta skref að ákveða hvað tæki við.
Maðurinn minn er húsasmíðameistari og rekur í dag
smíðafyrirtækið Sandá-Laugardal ehf.
Ég lenti hins vegar í smá „tilvistarkreppu“. Byrjaði
á því að vera einn vetur í kvöldskóla NTV í Kópa-
voginum. Svo ákvað ég að dusta rykið af stúdents-
prófsskírteininu mínu og sótti um í Háskóla Islands.
Það var óneitanlega dálítið strembið að setjast á
skólabekk eftir svona langt hlé en vorið 2010, eftir
þriggja vetra háskólanám, útskrifaðist ég sem bóka-
safns- og upplýsingafræðingur frá HÍ, með sagnfræði
sem aukagrein.
Lokaverkefni mitt í háskólanum var að lykla Litla-
Bergþór, þ.e.a.s. að búa til efnisorðaskrá eða skrár,
um efni blaðsins í gegnum árin. Lyklaðir eru
árgangarnir 1980 til 2008 að báðum árum
meðtöldum. Lyklun auðveldar fólki leit að greinum
og viðtölum í blað-inu. Hægt er að leita eftir
efnisorðum, höfundum eða nöfnum. Hins vegar eru
þessar skrár ekki tæmandi, því sumu því sem blaðið
inniheldur var sleppt. Ég vil hvetja alla sem vilja, til
að nota sér þessa efnisskrá hún er öllum opin og
aðgengileg á netinu. Það er hægt er að nálgast hana
með því að fara inná skemman.is og slá inn Litli-
Bergþór sem leitarorði. I upphafi verkefnisins er
inngangur þar sem sagt er í megindráttum frá
verkefninu. Þar segir m.a.:
Efnisskrá Litla-Bergþórs er unnin sem B.A. verk-
efni í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla
íslands.
í Litla-Bergþóri birtast greinar sem bæði eru
byggðar á gögnum og frásögnum frá fyrri tíð og
einnig taka atburðir líðandi stundar sitt pláss.
Litli-Bergþór er lifandi alþýðurit, sem hugsað er
fyrir alla Tungnamenn jafnt unga sem aldna.
Ohjákvæmilega litast efnisval blaðsins af þeim sem
eru í ritstjórn blaðsins hverju sinni. Þeir sem sitja í
111II11111........III.............11111111..111111111111H111!111M11111!111111111............1111]111111111111111111II11111111111111111111111111M 11111 [11111111111111111111111111111111111111111! 1111.1.........11111 [11111111! 111111....11111
Þjónusta í yfir 30 ár
□ Þjónusta á búvélum og tækjum í landbúnaði
□ Smurþjónusta - Olíusíur í bíla og dráttarvélar
□ Háþrýstislöngur - Sérsmíði
□ Bifreiðaviðgerðir c
□ Framrúðuskipti Mmlll
□ Hjólbarðaþjónusta
□ Nýsmíði
Litli-Bergþór 32