Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1998, Síða 17
Kæra Ættfræðifélag ! 1906 á Sandeyri. Eg hef ekkert fundið
um foreldra Helga, og þætti mér mikill
Ég vil byrja á að þakka kærlega fen§ur 1 Þvf ef einhver vissu eitthvað
fyrir fréttabréfm, þau veita mikla um Þau-
ánægju í hvert sinn er þau berast.
Nú langar mig að vita hvort félagar
mínir í ættfræðifélaginu geta veitt mér
einhverja aðstoð.
Mig vantar upplýsingar um foreldra
Helga Guðmundssonar sem var fæddur
um 1810 í Ögursókn. Hann var
niðursetningur í Vigur 1820 hjá Ólafi
Olafssyni hattamakara og Guðlaugu
Kársdóttur konu hans. Síðar var Helgi
í mörg ár niðursetningur hjá
Guðmundi Sigurðssyni sterka og konu
hans Elínu Vilhjálmsdóttur á Kleifúm í
Skötufírði, Helgi fór úr Ögursókn yfir í
Kirkjubólssókn 1834, og var hann
vinnumaður í Æðey 1835.
Þar var einnig vinnukona Margrét
Þorleifsdóttir (Þórðarsonar,
Sveinssonar bónda í Hafnardal.) en
hún varð seinna kona Helga.
Helgi var vinnumaður í Unaðsdal
1845, þá var hann búinn að eignast
son, Rögnvald Helgason fæddur um
1840, ég veit ekker um móður hans, ég
hef grun um að hann gæti hafa átt fleiri
böm. Helgi og Margrét gengu í
hjónaband 1850. Þau eignuðust
tvíbura sama ár, Þorleif (langafa minn)
og Ragnhildi. Þorleifúr var lengi í
fóstri í Múla í ísafirði, hann varð síðar
bóndi í Kleifakoti í ísafirði.
Samkvæmt manntali 1855 bjuggu
Helgi og Margrét á Tyrðilmýri á
SnæQallaströnd í tvíbýli, þá vom þau
búin að eignast Sveinbjörn fæddur
1852 og Bjarna fæddur 1854 hann var
faðir Arngríms Fr. Bjarnasonar
fræðimanns á ísafirði. Samkvæmt
manntali 1860 vom þau Helgi og
Margrét skilin (kannski sökum
fátæktar) ? , og vom þau vinnufólk
víða á Langadalsströnd og
Snæfjallaströnd. Helgi dó 1867, en
Margrét varð háöldmð 89 ára hún dó
Einnig vantar mig upplýsingar um
fólk sem bjó í Garpdalssókn.
1. Guðrún Björnsdóttir, hún bjó á
Litlu - Brekku 1801 ásamt manni
sínum Þorkeli Guðmundssyni og
dóttur sinni Sigríði, sem að hún átti
áður en hún giftist, hún átti einnig
son Jón (forfaðir minn hann
kvæntist Þóm Bjarnadóttur
Oddsonar). Guðrún átti bæði þessi
böm með Jóni Jónssyni sem að var
bóndi á Valshamri býli 2 1801, mig
vantar einnig upplýsingar um hann.
2. Jón Jónsson bóndi á Bakka í
Geiradal 1801 konaBjörg
Guðmundsdóttir. Hann var áður
kvæntur Þómnni Guðmundsdóttur,
hún dó 1792 ffá mörgum börnum,
meðal annars áttu þau Arna
Jónsson (forfaðir minn) kona hans
var Ingibjörg Ásmundsdóttir
Þórðarsonar á Skógarströnd.
Allar upplýsingar um þetta fólk
em mjög vel þegnar. Ég vil einnig
nota tækifærið og þakka Eggert Th.
Kjartanssyni fyrir þær upplýsingar og
fróðleik sem að hann sendi mér á
síðasta ári.
Með kæm þakklæti og góðum óskum
til félagsins.
Soffía G. Gunnarsdóttir
Jórvík I., Álftaveri, 880
Kirkjubæjarklaustri, sími 487 - 1380.
Athugið! vinsamlegast sendið okkur
hér hjá fféttabréfinu línu ef einhver
hefúr vitnesku um það sem spurt er
um, svo að aðrir lesendur fái að njóta
þeirra svara.
Haukur Hannesson.
16