Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Síða 3
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur - fyrirlestur á félagsfundi Ættfræðifélagsins í maí 2001:
Listmunir og ættfræði
s
Eg ætla að gera þá játningu strax, ég kem hingað
á ykkar fund meira til að fræðast af ykkur,
heldur en að ég geti frætt ykkur um margt. Það er
helst að ég geti vakið áhuga ykkar á þeim sjáanlegu
minjum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafni íslands,
og leitt ykkur fyrir sjónir hvemig einstaka gripir
gætu fyllt upp í þá ntynd sem við hugsanlega höfum
af forfeðrum okkar, aðstæðum þeirra og lífskjörum.
Mitt starf á Þjóðminjasafninu er að rannsaka þar
listgripi, einkum kirkjugripi með það að markmiði
að gera þá áhugaverða sem sýningarefni. Reyna að
finna einhver þau tengsl milli grips og áhorfenda
sem vekja áhuga. Ég skoða þá frá öllum mögulegum
sjónarmiðum. Reyni að átta mig á stíl, aldri, notkun
eða tilgangi, - og reyni að finna upprunastað, eig-
endur, notendur, og höfunda. Þetta með höfundana er
erfiðast. En það er einmitt sá þáttur sem er einna
áhugaverðastur. Við höfum öll svo mikinn áhuga á
persónusögu, og það að geta tengt gripi ákveðnum
höfundum og/eða notendum, og þar með ákveðnu
umhverfi hefur margfeldiáhrif og -gildi. Og þar
kemur ættfræðin að miklum notum.
Prédikunarstóll frá Bæ á Rauðasandi
Ég ætla að byrja á því að sýna ykkur merkilegan
prédikunarstól sem við vitum með vissu að var
smíðaður árið 1617, því að það stendur á honum. Við
vitum líka að Bjöm Magnússon bóndi og sýslumaður
á Bæ á Rauðasandi lét smíða stólinn og lagði til
Bæjarkirkju, því það stendur einning á honum. Þó að
við vissum ekkert um stólinn væri hann eftirlætis-
gripur í safninu, því hann er svo frábærlega frum-
legur og skemmtilegur, leyfi ég mér að segja. Hann
er allur útskorinn, með mannamyndum, blað-
strengjum og letri. Og skrautlega málaður í mörgum
litum. Letrið er latínuletur með ofangreindum
fróðleik um tilurð hans, svo og biblíutilvitnunum í
höfðaletri. Þar stendur með fíngerðu lítt áberandi
letri efst undir kantinum: ANNO 1617. TIL MINNIS
LÉT SÁ ÆRUVERÐUGI VELVÍSI LRÓMI
HEIÐURSMAÐUR BJÖRN B MAGNÚSSON
SMIDA ÞENNAN PREDIKUNARSTÓL TIL ÆRU
OG SÆMDAR VIÐ ÞAÐ HEILSUSAMA LÍL-
KRÖFTUGA GUÐSORÐ.
En það eru ekki síst myndimar sem em áhuga-
verðar. Hér höfum við í miðju Krist á krossinum og
Maríu guðsmóður og lærisveininn Jóhannes sam-
kvæmt hefð; - en til hliðar guðspjallamennina fjóra
með sín tákn. Nöfn guðspjallamannanna standa og
skýrum stöfum undir myndunum. Það frumlegasta
við þessar mannamyndir er að guðspjallamennirnir
og María og Jóhannes eru öll í dökkum klæðum að
hætti 17. aldar manna, en ekki í kyrtlum ættuðum
sunnan úr löndum, eins og langalgengast er á slíkum
kirkjugripum. Þessir búningarnir hljóta að draga dám
af klæðnaði Islendinga á þessum tíma. Guðspjalla-
mennimir eru í svörtum hempum að hætti lútherskra
kennimanna, og Jóhannes við kross Krists er í svartri
skikkju en í ljósum, hnepptum, stuttum jakka að
hætti þeirrar tíðar hefðarmanna. María er einnig
dökkklædd, í svartri treyju og möttli og með rauða
svuntu. Islenskar málaðar mannamyndir frá fyrri
öldum eru fágætar. Það er eiginlega ekki fyrr en langt
er liðið á 17. öldina að við rekumst á slíkar myndir.
Og það er einsdæmi að finna mynd af Maríu guðs-
móður í íslenskri myndlistarflóru Þjóðminjasafnsins,
klædda eins og íslenska sveitastúlku, eða hefðar-
stúlku öllu heldur. Guðspjallamennimir eru allir með
bók í hendi. Er það e.t.v. Guðbrandsbiblía? Þetta eru
lútherskir, ég leyfi mér að segja íslenskir, guðsmenn
sem við sjáum hér.
Ekkert bendir til erlendra fyrirmynda. Verkið
verður hvorki dregið í dilk með endurreisnarverkum
né barokkverkum. Gotneski svipurinn á einstaka
HÞóra Kristjánsdóttir er
fædd í Reykjavík 23.
janúar 1939. Loreldrar:
Kristján G. Gíslason
stórkaupmaður í Reykja-
vík og kona hans Ingunn
Jónsdóttir. Þóra lauk
stúdentsprófi frá MR
1959, Fil. Kand. prófi í
Listasögu og skyldum greinum frá Stokkhólmi
1971 og MA-próf í sagnfræði frá Háskóla
Islands 1999. Þóra var fréttamaður hjá Ríkis-
útvarpinu á árunum 1967-1974, dagskrárfulltrúi
Norræna hússins 1974-1979, Listráðunautur
Kjarvalsstaða 1979-1986 og sérfræðingur hjá
Þjóðminjasafni Islands frá 1987. Maki Þóru er
Sveinn Einarsson leikhúsfræðingur og eiga þau
eina dóttur, Ástu Kristjönu, sem stundar
doktorsnám í heimspeki í Bandaríkjunum.
http://www.vortex.is/aett
3
aett@vortex.is