Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Qupperneq 13

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Qupperneq 13
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002 jafnfyrirferðarmikill í íslenskum bókahillum og Guðni Jónsson. Hann fékk ungur áhuga á ættfræði og var mikil- virkur á því sviði. Ekki er fjarri lagi að ímynda sér að þær kringumstæður sem ólst upp við, fjarri sínu nánasta fólki, hafi átt sinn þátt í að vekja áhuga hans á ætt sinni og uppruna þegar hann komst á fullorðinsár, en einnig kveikti áhuga hans til frekari rannsókna sú uppgötvun að hann og Jónína Margrét, fyrri kona hans, voru fjórmenningar að skyldleika. Voru þau bæði af ætt Bergs hreppstjóra Sturlaugssonar í Brattsholti. Guðni var innan við þrítugt þegar hann hóf markvissar ættfræðirann- sóknir um niðja Bergs í Brattsholti og árið 1932 gaf hann á eigin kostnað út fyrri útgáfu af Bergsætt í einu bindi, nálægt 450 bls. Árið 1966 fylgdi hann svo eftir þessu brautryðjendaverki sínu og gaf aftur út Bergsœtt, en nú í þremur bindum, rúmlega 1500 bls., þar af er nafnaskráin ein 337 tvídálkasíður. Björn Þorsteinsson segir m.a. svo um útgáfustörf Guðna í minningarorðum um hann er birtust í tímaritinu Sögu XII (1974): Eitt af stórvirkjum Guðna Jónssonar var að gera íslenskar fornbókmenntir aðgengilegar alþýðu manna og þar með að kjarna í flestum heimilis- bókasöfnum hér á landi. Hann var að rækja skyldur sínar við vinnupiltinn Guðna Jónsson, sem rýndi í gamla daga í fomar bækur austur í Rangárþingi. Hann vann mikið starf við elstu alþýðlegu heildarútgáfu Islendingasagna, sem venjulega er kennd við Sigurð Kristjánsson og Valdimar Ásmundsson, en hefði að lokum átt að kennast við Guðna Jónsson. Þá stofnaði hann til nýrrar stórútgáfu íslenskra fornrita 1946, - Islendingasagnaútgáfunnar, sem nú telur 42 bindi, en sjálfur sá hann um útgáfu 32 binda. Nafnaskrá hans við Islendingasögurnar, 441 tvídálkasíða, er gríðarlegt verk, sem ég held að enginn einn íslenskur fræðimaður hefði ráðist í annar en Guðni Jónsson. Hann tók saman nafna- og atriðisorðaskrár við Þjóðsögur Jóns Arnasonar, mikið þarfaverk á sínum tíma. Nafnaskrár hans eru ómetanlegt tæki hverjum þeim, sem fæst við íslensk fræði, og Islendingasagnaútgáfan í heild er áfangi í útgáfu íslenskra fomrita. Að baki henni liggur mikið starf, en Guðni var óverkkvíðinn fullhugi, sem sást ekki fyrir, en vann öll störf sín í þágu íslenskra fræða af ást á viðfangsefninu og því fólki sem naut fræða hans og um var fjallað. Ég vissi aldrei til þess, að hann væri að vinna sér til lofs eða lærdómsfrægðar, heldur var hann að þjóna fræðum og fólki, sem hann unni. Hann var af þeirri kynslóð, sem við höfum átt eina fræknasta og kennd er við aldamótin og átti sér hugsjónir. Islensk menning og fullveldi var honum hjartans mál. Annars bar hann aldrei tilfinningar sínar á torg, var sterklundað ljúfmenni. Eftir Guðna liggur m.a. um 2.500 blaðsíðna þáttasafn: Islenskir sagnaþœttir og þjóðsögur, 12 hefti, og Skyggnir, safn íslenskra alþýðufrœða, 2 hefti. Þar munu menn kynnast einna best forsendunum að lýðhylli fræðimannsins Guðna Jónssonar. . . . Sagnasafn Guðna er stórmerkt, en bíður úrvinnslu eins og flest annað í íslenskum fræðum. Guðni segir í formála fyrir fyrsta sagnakveri sínu 1940, að enn sé sagnagarður alþýðumanna svo auðugur, „að hann mun bera ríkulegan ávöxt hverjum þeim, sem rækt vill við hann leggja“, og Guðni Jónsson var ríkur af ræktarsemi. Af öðrum ritum sem Guðni er hvað þekktastur fyrir er eins konar trílógía, þriggja binda verk, sem hann samdi um fæðingarsveit sína. Hún hefst á byggðasöguritinu Bólstaðir og búendur í Stokks- eyrarhreppi, sem var doktorsritgerð hans. Síðari bindin tvö voru Stokkseyringasaga I. og II. Þá samdi Guðni einnig Sögu Hraunshverfis á Eyrarbakka og sögu Gríms Gíslasonar í Oseyrar- nesi með niðjatali hans, en þar er er fjallað um sögu sama byggðarlags og í Stokkseyringasögu. Um þá Stokkseyringa samdi hann þannig um 2.000 blaðsíður, en auk þess gaf hann út um þá ýmis þáttasöfn og Söguna af Þuríði formanni og Kambránsmönnum eftir Brynjólf frá Minnanúpi. Þegar Guðni féll frá hafði trúlega enginn íslenskur fræðimaður gert fæðingarsveit sinni önnur eins skil og hann og ætla má að að svo sé enn. Auk ofangreindra rita, íslendingasagna handa almenningi, rita um byggðasögu og ýmis alþýðleg fræði vann Guðni að fjölmörgum fræðiritum á sviði sérgreinar sinnar. I ritröðinni Islensk fornrit annaðist hann útgáfu Bandamannasögu og Grettis sögu Asmundssonar, og ásamt Sigurði Nordal ritstýrði hann Borgfirðinga sögum. Þá samdi hann sögu Háskóla Islands fyrstu fimmtíu árin auk fjölmargra fræðiritgerða. Hér hefur aðeins verið getið um helstu rit og útgáfur sem Guðni Jónsson ýmist samdi eða sá um. Um frekari heimildir um ævi hans og störf og ritaskrá vísast í Bergsœtt, II, bls. 130, og rit þar er http://www.vortex.is/aett 13 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.