Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Síða 18
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
Einar Ingimundarson:
Um fundi ættfræðigrúskara á Suðurnesjum
s
Iágúst 2000 fékk ég bréf frá Ólafi H. Óskars-
syni formanni Ættfræðifélagsins og fór hann
þess á leit að ég gerði tilraun til að kalla saman
þá félaga Ættfræðifélagsins sem byggju á
Suðumesjum, til skrafs og ráðagerða einu sinni
í mánuði að vetrinum. Mín viðbrögð voru
hvorki hröð né snögg, en eftir að hafa hugsað
málið rækilega og rætt það við ýmsa þá tók ég
þá afstöðu að reyna þetta. Fékk því næst leyfi
hjá forstöðumanni Bókasafns Reykjanesbæjar
að við fengjum að koma þar saman að kvöldi til
einu sinni í mánuði yfir veturinn.
Fyrsta fund boðaði ég skriflega og sendi
öllum skráðum félögum í Ættfræðifélaginu
búsettum á Suðurnesjum bréf um fyrirhugaðan
fund, sem boðað var til þriðjudagskvöldið 7.
nóvember 2000 kl. 20.00 og með fylgjandi var
ljósrit af bréfi formannsins svo tilgangurinn
lægi ljós fyrir.
Helsta niðurstaða fyrsta fundar var að stefna
að því að halda þessa fundi fyrsta mánudag í
hverjum mánuði, sem ekki bæri uppá helgidag
eða annan almennan frídag.
Síðastliðinn vetur voru þessir fundir haldnir
eins og gert hafði verið ráð fyrir og voru þeir
haldnir reglulega fram í maí.
Af og til var fréttatilkynningum komið í
bæjarblöðin og vakin athygli á þessu starfi og
því komið á framfæri að ekki væri skilyrði að
vera í Ættfræðifélaginu til að sækja þesa fundi.
A síðastliðnu hausti voru haldnir þrír fundir.
Þá er komið að því sem flestir munu hafa
áhuga á að vita. Hver er árangurinn af þessum
fundum?
Hann er að mínu mati umtalsverður:
1. Fólk hefur gaman af að koma saman og
ræða sín hugðarefni.
2. Þeir sem styttra eru komnir geta spurt þá
reyndari um hvemig þeir geti gert eitt og
annað.
3. Þá hefur verið rætt um aðstöðu. For-
stöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar
hefur sýnt okkur ættfræðigrúskurum mik-
inn velvilja frá því fyrsta að þangað var
leitað og er nú meðal annars unnið að því
að koma þar upp fyrsta áfanga að skjala-
safni á örfilmum (mikrofilmum).
Þá ætla ég að útskýra nánar svarið í lið I.
Mönnum finnst ef til vill það svar vera um of
einfalt, en þetta er bara mál málanna í öllum
félagsskap. Menn með svipuð hugðarefni stofna
félög og koma saman til að ræða þau, sinna
þeim og koma þeim í framkvæmd. Gagnsemi
þessara funda er ótvíræð, því ef einhver stynur
því upp að honum gangi illa að hafa uppi á
manni sem hann til nefnir þá veit einhver hinna
oftast það mikið að eftirleikurinn verður auð-
veldur.
Þá er það við hæfi að geta um fundarsókn.
Ekki er beint hægt að segja að fundir þessir hafi
verið fjölsóttir, oftast hafa mætt rétt innan við
tíu og stundum hefur tölunni tíu verið náð eða
rúmlega það.
Fyrsti fundur 2002 verður haldinn í Bóka-
safni Reykjanesbæjar mánudaginn 4.
febrúar, klukkan 20, og eru allir ættfræði-
grúskarar á Suðurnesjum boðnir velkomnir.
http://www.vortex.is/aett
18
aett@vortex.is