Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Page 22

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Page 22
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002 Fréttir af félagsstarfinu Bókagjafir A félagsfundi 25. október sl. færði Jónína Margrét Guðnadóttir Ættfræðifélaginu að gjöf ritið „Aldar- minning Guðna Jónssonar 1901-2001. Nokkur ævibrot og niðjatal“, Reykjavík 2001, sem hún hafði tekið saman. Þar eru rakin nokkur ævibrot Guðna Jónssonar, prófessors, sem var formaður Ættfræði- félagsins 1946-67, eins og segir hér að framan í þessu tölublaði Fréttabréfsins, svo og niðjatal hans. Skömmu áður hafði Jónína Margrét einnig fært Ættfræðifélaginu að gjöf ritið „Lækjarbotnaætt I-II“, Reykjavík 2001, sem hún var ritstjóri að. „Lækjarbotnaætt er rakin til hjónanna Guðbrands Sæmundssonar og Elínar Sigurðardóttur, sem bjuggu í Lækjarbotnum í Landssveit á fyrstu áratugum nítjándu aldar“, eins og segir í formála ritsins. Þau Guðbrandur og Elín eignuðust fjórtán börn, sjö þeirra komust til fullorðins ára og eignuðust böm; niðjar þeirra eru taldir í þessu riti, auk þess er fjallað um framættir þeirra Guðbrandar. Ættfræðifélginu er mikill fengur að þessum tveimur ritum og munu þau að sjálfsögðu renna inn í bókasafn félagsins. Stjóm Ættfræðifélagins kann Jónínu Margréti Guðnadóttur kærar þakkir fyrir þessar höfðinglegu gjafir. Kynning á ættfræðiforritum Stjórn ÆF efndi til kynninga í Opnu húsi að Ármúla 19 á helstu tölvuforritum í ættfræði, sem í notkun eru í landinu. Tókust þesar kynningar vonum framar - á þriðja tug félaga sóttu hverju sinni þessar kynningar, sem voru fjögur miðvikudagskvöld í röð í október og nóvember sl. Guðrún Jóhannsdóttir reið á vaðið með því að kynna ættfræðiforritið Win Family 31. október; Friðrik Skúlason kom næstur 7. nóvember með því Friðrik Skúlason, forstjóri og tölvufræðingur kynnir hér forritið Espólín. Ljósm. Olgeir Mölier. Arngrímur Sigurðsson, f.v. kcnnari (standandi frá vinstri) kynnti forritið Reunion og Gunnar Ingi Kristinsson (til hægri) kynnti ættfræðiforritið sitt Dofra. Ljósm. Olgeir Möller. að kynna forritið Espólín, sem hann er höfundur að, eins og kunnugt er; hinn 14. nóvember kynntu þeir Gunnar Kristinsson og Amgrímur Sigurðsson tvö forrit - Gunnar kynnti ættfræðiforritið sitt Dofra, og Amgrímur forritið Reunion, sem er amerískt að uppruna. Síðasta kvöldið 21. nóvember kynntu þau Guðrún Jóhannsdóttir og Oddur Árrnann Pálsson nokkur forrit svo sem Fzip, Legacy og Familytree, og dreifðu útprentunum af Netinu á santanburði á nokkrum forritum af slóðunum <google.com>, <mumford.ab.ca>, sem menn geta skoðað sjálfir. Stjórn ÆF vill koma á framfæri þakklæti sínu til þeirra Guðrúnar, Friðriks, Gunnars, Arngríms og Odds fyrir framlag þeirra. Námskeið 1 framhaldi af þessum kynningum munu stjórnar- menn ÆF taka við óskum félaga um námskeið í notkun tiltekinna forrita, sem félagar sjálfir vilja helst komast á. Stefnt er að því að svo verði í byrjun næsta árs. Verða menn að koma óskum sínum á framfæri fyrir 15. febrúar nk„ svo unnt verði að undirbúa málið í tæka tíð. Fari svo, að þessum nám- skeiðum verði ekki komið á, mun stjómin reyna að koma mönnum í samband við félaga í næsta nágrenni, sem búa yfir tilteknu ættarforriti og eru fúsir til að leiðbeina mönnum í notkun þeirra fyrstu skrefin og/eða vera þeim til ráðuneytis. Þetta gæti því verið á landsvísu, þ.e. náð til félaga vítt og breitt um landið. Menn af Akranesi, Keflavík og Suður- landi sóttu þessar kynningar, auk félaga af höfuðborgarsvæðinu. ÓHÓ http://www.vortex.is/aett 22 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.