Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Page 23
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
Lög Ættfræðifélagsins
frá 29.11.1989, með breytingum samþykktum á aðalfundi 24.2.1994
1. grein. Nafn félagsins og lögheimili.
Félagið heitir Ættfræðifélagið. Fleimili þess og vamarþing er í Reykjavík.
2. grein. Hlutverk.
Hlutverk félagsins er :
1. Að stuðla að auknum áhuga á ættfræði, ættfræðirannsóknum og útgáfu frumheimilda og
hjálpargagna fyrir þá sem stunda þjóðleg fræði (ættfræði) svo sem manntala, búendatala og
ættartöluhandrita.
2. Að halda félagsfundi um ættfræðilegt efni.
3. Að gefa út félagsbréf, þar sem fyrirlestrar og annað efni er birt.
4. Að leita eftir samstarfi við önnur fræðifélög hérlendis og erlendis.
3. grein. Aðalfundur.
Aðalfund skal halda fyrir febrúarlok ár hvert og miðast reikningsár við almanaksárið. Fundinn
skal boða skriflega með minnst 10 daga fyrirvara. Þar komi fram dagskrá fundarins, en hún
skal vera á þessa leið:
1. Skýrsla stjómar.
2. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
3. Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjómar og ársreikningana.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar samkvæmt 4. grein.
6. Árgjald ákveðið.
7. Önnur mál.
4. grein. Stjórn, Stjómarkjör og endurskoðendur.
Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi til eins árs í senn.
Stjórnina skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjómandi.
Ennfremur skulu kjömir til eins árs tveir varastjómendur og tveir endurskoðendur. Formaður
skal kjörinn sérstaklega en að öðru leiti skiptir stjómin sjálf með sér verkum.
Leita skal á aðalfundi eftir tillögum um framboð til kjörs stjómar og endurskoðenda. Kosning
skal vera bundin og skrifleg ef fleiri eru í kjöri en kjósa skal.
5. grein. Nefndir.
Stjómin skipar nefndir eftir þörfum. í hverri nefnd skulu vera minnst 3 menn
6. grein. Lög og Lagabreytingar.
Breytingar við lög þessi skulu aðeins gerðar á aðalfundi.
Tillögur þar um skulu sendar með fundarboði. Til samþykktar þarf 60% fundannanna á löglega
boðuðum aðalfundi.
7. grein. Slit félagsins.
Eigi má leggja félagið niður ef fimm menn eða fleiri vilja halda því áfram. Verði félagið lagt
niður, skulu eignir þess afhentar Þjóðskjalasafninu til varðveislu enda séu þær afhentar aftur
félagi, er síðar kynni að verða stofnað í sama tilgangi og félag þetta.
http://www.vortex.is/aett
23
aett@vortex.is