Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2007, Blaðsíða 12
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2007
Menningarlegur stórhugur í Rangárvallasýslu
Holtamannabók Holtahreppur
- mikið eljuverk
Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún
fjallar hér um Holtamannabók Holtahrepp
sem kom út á síðastliðnu ári. Hann dáist
að hinum einstaka menningarlega stórhug
sveitastjórna í utanverðri Rangárvallasýslu
sem hafa verið með fræðimenn á launum í
fjölda ára við að taka ritið saman.
Holtamannabók
Holtahreppur.
710 bls.
Höfundar: Ragnar Böðvarsson, Valgeir Sigurðsson
og Þorgils Jónasson.
Útg: Rangárþing ytra 2006.
Hér er um að ræða mikið héraðs- og fræðirit,
þar sem fjallað er um allar jarðir í Holtahreppi í
Rangárvallasýslu. Rakin er eigendasaga jarðanna og
lýst er landamerkjum. Nefndir eru allir þeir ábúendur,
allra jarðanna, sem vitað er um allt frá landnámsöld
(um árið 900) og til okkar tíma (2006). í ritinu er
hver einstakur bóndi á þann veg meðhöndlaður að
nafngreindur er maki hans, foreldrar þeirra beggja
og afar og ömmur, þá eru bömin upptalin ásamt
þeim tengdabörnum sem ekki er annars staðar getið
í bókinni. Fæðingar- og dánardagar eru tilgreindir.
Þá er nokkur lýsing gefin á húsbændum og er hún
oftast tekin upp úr prentuðum minningargreinum
dagblaðanna eða gömlum líkræðum prestanna.
Myndir eru af öllum húsbændum sem fengnar
urðu, ennfremur tvær myndir af hverju býli; önnur
gömul en hin frá síðustu árum. Þá er það athyglisvert
við þessa bók, að á sama hátt er fjallað um alla
húsbændur allra húsanna í þéttbýliskjörnunum þrem-
ur, þ.e. Laugalandi, Lyngási og á Rauðalæk.
Þá er ýmiss annar fróðleikur í bókinni, eins og
mannfjöldaskrár einstakra bæja, þær elstu frá 1703
og sú yngsta frá 1990, ennfremur er þar hrepps-
nefndarmannatal. Nokkrar myndir eru táknandi fyrir
mannlíf fyrri tíðar m.a. frá réttum í Réttarnesi.
Ennfremur er þar kafli um Kambsrétt. Aftast er skrá
yfir öll mannanöfn sem koma fyrir í bókinni, þar
sem vísað er til blaðsíðna og auðveldar sú nafnaskrá
mönnum að nota bókina til ættrakninga.
Tvennt vekur sérstaka athygli varðandi bók
þessa:
1) Önnur hliðstæð rit rekja ábúendasöguna oftast
ekki lengra aftur en til manntalsins 1703 en sem
fyrr segir rekur bókin þetta frá landnámsöld.
2) Sveitarstjórnirnar í utanverðri Rangárvallasýslu
hafa sýnt þann einstaka menningarlega stórhug
að vera með fræðimenn á launum í fjölda ára
við að taka ritið saman. Er þar „sleginn annar
taktur“ en hjá fráfarandi borgarstjómarmeirihluta
Reykjavíkur sem styrkti Ættfræðifélagið um
einungis krónur 50 þúsundir (segi og skrifa krónur
fimmtíu þúsundir) vegna hinnar kostnaðarfreku
útgáfu á manntali Reykjavíkur fyrir árið 1910.
(Þessi orð mín fela ekki í sér neinn dóm um önnur
störf pólitískra fylkinga þar í borg).
Það dylst varla nokkrum manni að aðalhöfundur
ritsins, Ragnar Böðvarsson, hefur hér unnið mik-
ið eljuverk. I svo viðamiklu riti sem þessu hljóta
að finnast einhverjar villur/glompur. Slíkt er
óhjákvæmilegt. Kaflarnir urn þróunarsögu Lauga-
landsskóla eru mjög fróðlegir. Hins vegar get ég
ekki stillt mig um að leiðrétta þar fáein ártöl úr
„kennaratal“ og „íbúaskrá“ yfir Laugaland: Stefán
Ásgrímsson var hættur kennslu 1972-73 (en nafni
hans Böðvarsson kenndi þennan eina vetur og er
hans að engu getið). Sama villa er í íbúaskránni
á bls. 499. Sagt er að Helga Geirsdóttir hafi verið
matráðskona til 1973; það er ekki rétt því hún hætti
ári fyrr. Ennfremur segir að Eyrún Óskarsdóttir hafi
verið ráðskona frá 1973 en hún tók við því starfi ári
fyrr. Á bls. 494 segir að Helgi Jensson hafi kennt á
Laugalandi til vors 1973 en hann hætti ári fyrr. Þá er
undirritaðs (G.G.) ekki getið í íbúaskránni, bjó hann
þó þar í 8 ár, lengst af í skólastjóraíbúðinni. Hans
er hins vegar réttilega getið í skólastjóratalinu. Allt
er þetta smávægilegt. Þótt það sé allt annar „hand-
leggur,“ þá stend ég í þeirri meiningu að forfaðir
minn, sr Sigurður í Guttormshaga, hafi innritast í
Bessastaðaskóla 1806 en ekki 1805 eins og bókin
tekur upp eftir Islenskum æviskrám.
Bók þessi er eigulegur fróðleiksgripur. Hún fæst
a.m.k. í Bókabúð Bjama Harðarsonar á Selfossi og á
skrifstofunni hjá Rangárþingi ytra, Suðurlandsvegi 1
á Hellu, en síminn þar er 487-5834.
Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún.
Fréttabréf Ættfræðifélagsins kemur út
tvisvar á vormisseri og tvisvar á haustmisseri.
Miðað er við textaskil 1. janúar, 1. mars,
1. september og 1. nóvember.
Af óviðráðanlegum orsökum kom ekkert
Fréttabréf út í október.
http://www.ætt.is
12
aett@aett.is