Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2007, Blaðsíða 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2007
Guðfinna Ragnarsdóttir:
Vegir ætta og auðs
Heilaleikfími fyrir áhugasama
Um 1799 fæddist lítil stúlka vestur í Ólafsdal.
Hún var skírð Guðbjörg og varð í fyllingu tím-
ans langalangamma mín. Stúlkan var barn hús-
móðurinnar Guðrúnar Bjarnadóttur „eldri“ og
vinnumanns hennar Þórarins Þórarinssonar.
í því merka riti Úr fylgsnum fyrri alda eftir Friðrik
Eggertz komst ég að því að Guðbjörg litla hafði
verið tekin í fóstur af þeim þeim Jórunni og Elínu
Brynjólfsdætrum. Friðrik Eggertz skráði um Jórunni
eina þá mergjuðustu mannlýsingu sem um getur,
þar sem hún er m.a. sögð munnófríð með geiflu,
langhálsuð og siginaxla með krepju í augum...
í bók Friðriks sá ég að Jórunn hafði meira að
segja arfleitt þessa langalangömmu mína að hálfu
Þverfellinu í Saurbæ. Ég hafði lengi spáð í hvers
vegna þessar ríku mektarsystur hefðu tekið þessa litlu
lausaleikstelpu að sér og gert svo vel við hana. Ég
rakti það á sínum tíma með miklum erfiðismunum en
mér til mikillar ánægju.
Þessi ættartengsl rifjuðust upp nýverið þegar ég
brá mér í menningarreisu vestur í Saurbæ og hitti þar
af tilviljun afkomanda Friðriks Eggertz. Ég væri að
segja ósatt ef ég segðist hafa rúllað skyldleikanum
upp eins og hér fer á eftir, en þessi ferð gaf mér tilefni
til að rifja upp þessi merkilegu en flóknu ættartengsl,
þar sem meira að segja draugar koma við sögu.
í grúski mínu fann ég að Halldóra Pálsdóttir,
lögréttumannsfrú íBroddanesi, amma Þórarins, langa-
langalangafa míns í Ólafsdal, og föður Guðbjargar
litlu, var móðursystir þeirra Elínar og Jórunnar
Brynjólfsdætra. Móðir þeirra Ingibjörg Pálsdóttir
(1704-1778) og Halldóra Pálsdóttir (1695-1779) í
Staðarfell á Fellsströnd. Soffía Gestsdóttir, húsfreyja
á stórbýlinu Staðarfelli, var dótturdóttir Guðbjargar
Þórarinsdóttur. Arfur Guðbjargar ömmu hennar, eftir
fóstru sína Jórunni Brynjólfsdóttur, lagði grunninn að
Staðarfellsauðnum.
Broddanesi, voru systur, dætur Páls Jónssonar prests á
Melstað. Ingiríður Pálsdóttir, móðir Þórarins og amma
Guðbjargar, og Jórunn, sú munnnófríða með geiflu,
og Elín, systir hennar, voru sem sé systradætur.
Konungsleyfí
Þar við bætist að fyrri maður Elínar, Markús Pálsson,
prestur á Auðkúlu, var bróðir Ingiríðar, ömmu Guð-
bjargar, og því líka sonur Halldóru Pálsdóttur. Þau
hjónin Elín Brynjólfsdóttir (1741-1827) og Markús
Pálsson (1735-1772) voru því systraböm. Þau giftust
1765 en áttu engin böm saman. Markús lést eftir 7 ára
hjónaband aðeins 37 ára gamall.
Foreldrar Markúsar Pálssonar og Ingiríðar Páls-
dóttur, formóður minnar (ömmu Guðbjargar litlu)
þau Páll Markússon lögréttumaður í Broddanesi og
Halldóra Pálsdóttir kona hans vom líka systraböm
og þurftu konungsleyfi til þess að fá að giftast.
Móðir Markúsar var Sigríður Erlendsdóttir og
móðir Halldóru konu hans var systir hennar Guðrún
Erlendsdóttir prestsfrú á Melstað 1703.
Elín, önnur fóstra Guðbjargar litlu, var því bæði
systrabarn við Ingiríði Pálsdóttur ömmu hennar
og hafði verið gift Markúsi Pálssyni ömmubróður
hennar!!! Elín giftist síðar Magnúsi Ketilssyni sýslu-
manni. Hún átti engin böm með Magnúsi enda
komin úr bameign þegar þau giftust. Ragnheiður
Eggertsdóttir f. k. Magnúsar lést 1793 rúmlega
fimmtug að aldri. Þau Ragnheiður og Magnús Ketils-
son áttu 10 börn saman. Ragnheiður og Elín voru
bræðradætur. Magnús Ketilsson lést 1803 þegar
Guðbjörg litla er 3-4 ára.
Efnuð og barnlaus
Sökum þess mikla skyldleika og tengsla sem eru með
þessu fólki öllu gæti Ingiríður, mamma Þórarins, sem
fædd var 1728, (mig vantar dánardag hennar), ef hún
hefur verið á lífi þegar Guðbjörg fæddist 1799, hafa
látið Þórarin son sinn koma þessari óskilgetnu dóttur
sinni, Guðbjörgu, til Jórunnar frænku sinnar sem þá
var um sextugt, velefnuð en bamlaus. Jórunn átti eins
og kunnugt er tvö börn með Jóni skáldi Þorlákssyni á
Bægisá en missti þau bæði. Ekki fékk hún heldur að
eiga hann. En þær Ingiríður, amma Guðbjargar litlu,
og Jórunn voru eins og áður sagði systradætur og Elín
systir Jómnnar þar að auki mágkona Ingiríðar.
Alla vega elst Guðbjörg litla upp hjá Jórunni
og síðar Elínu, eftir að Magnús Ketilsson deyr og
þær eru kallaðar fóstrur hennar. En ekki nóg með
http://www.ætt.is
20
aett@aett.is