Foreldrablaðið - 01.05.1952, Síða 7

Foreldrablaðið - 01.05.1952, Síða 7
ar allt þetta leggst á eitt, ásamt öðru ónefndu, er augljóst, að hér bíður mikið og erfitt verk úrlausnar. Þeim mun ötul- legar þarf að hefjast handa. Kennaraskólanum ber að sjálfsögðu að hafa forystu um að bæta úr skorti á verk- kunnáttu kennara. Til þess vantar hann hins vegar öll skilyrði. Prófhyggja og værugirni samtímans örvar lítt til stórra átaka eða nýrrar stefnu í menntun kenn- ara. En jafnvel ofurmannlegur kraftur, hugvit og snilli gæti heldur ekki bætt upp hina ömurlegu aðstöðu kennaraskólans. Eitt allra þýðingarmesta atriðið í skóla- málum okkar er því það, að koma málum hans í viðunandi horf, búa hann svo að húsum og áhöldum, að hann geti orðið sínu mikilvæga hlutverki vaxinn. Á starfi hans grundvallast að verulegu leyti starf allra annarra skóla, og ætti því að vanda þeim mun betur til hans á allan hátt, í stað þess að láta hann vera eins konar Oskubusku meðal skólanna. Hinn full- komnasti kennaraskóli getur að vísu ekki geíið tryggingu fyrir misfellulausu starfi annarra skóla, en lélegur kennaraskóli er sæmileg trygging þess, að flestir aðrir skólar misheppnist að meira eða minna levti. -----o---- Hlutverk þjóðfélagsins er að efla far- sæld þegnanna, hópsins alls, en um leið sérhvers einstaklings, því að einstakling- arnir mynda hópinn, sem einstaklingar reyna þeir farsæld eða ófarsæld. Geti ein- staklingurinn ekki aflað sér lífsnauðsynja, er bein skylda þjóðfélagsins að koma hon- um til hjálpar, hvort sem hann skortir líkamsburði, vit eða framtak. Þessi skylda þjóðfélagsins rekur ekki uppruna sinn til kristindóms né annarra hugsjóna eða sið- fræði, heldur ekki til samvinnustefnu né sósíalisma, enda þótt hún samrýmist þess- um stefnum, heldur á hún sér þær ein- foldu forsendur, að samfélagi mannanna, þjóðfélaginu, er beinlínis ætlað þetta hlut- verk. Aðeins sá, sem gerir uppreisn gegn samfélaginu, t. d. með því að neita að vinna fyrir brauði sínu eða á annan alvar- legri hátt, glatar rétti sínum til hjálpar þess. Þannig ber þjóðfélaginu að tryggja hverjum vinnufúsum manni atvinnu, að svo miklu leyti sem framtak einstakling- anna sjálfra hrekkur ekki til. Án efa er þróun mannkynsins hagfelldast, að per- sónulegt framtak hafi sem mest svigrúm og fái notið sín sem bezt, þótt öryggi fjöld- ans krefjist allmikillar skerðingar þess — og öryggi er kjörorð tímans. En á hinn bóginn má engin ímynduð virðing fyrir einkaframtaki, sem því miður er orðið pólitískt slagorð og því vandnotað, verða til þess að villa mönnum sýn um þá ein- földu og augljósu skyldu þjóðfélagsins, sem áðan var greind. Bregðist það henni að ráði, er það ekki hlutverki sínu vaxið og hlýtur að tortímast fyrr eða síðar. En mönnum er ekki aðeins þörf að vinna til að sjá sér farborða, heldur einnig af því að iðjuleysi er óhollt. Og iðjuleysið er jafn háskalegt, hvort sem maður hefur fyrir fleirum að sjá eða er sjálfur á fram- færi annarra. Þess vegna er jafn skylt að vernda börn og unglinga frá iðjuleysi eins og að fá fjölskylduföður lífeyri. Að sumu leyti er sú nauðsyn enn brýnni, þvl að verkefnaskorturinn leikur óþroskaðan ungling verr en fullmótaðan mann. Og þá komum við enn að skólanum, að þriðju röksemd skólaskyldunnar, — því að: „Hvað ættu krakkarnir að gera, ef skól- inn væri ekki?“ Þannig heyrist oft spurt, og má venju- lega greina á raddblænum, að spyrjand- inn þykist hafa hitt naglann á höfuðið og fært óhrekjandi rök að nauðsyn langrar skólaskyldu. í mínum eyrum hljómar spurningin að vísu miklu fremur sem óbein yfirlýsing um, að skólinn sé engan vcginn hin rétta lausn, hann sé raunar skárri en iðjuleysi og slæpingsháttur, FORELDRABLAÐIÐ 7

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.