Foreldrablaðið - 01.05.1952, Side 12
Sex þjónandi prestar í Rcykjaviþ
svara spurningunni
Á að seinka fermingu barna um eitf ár?
Uppeldismálaþing S. í. B. 1951 sam-
þykkti m. a. eftirfarandi tillögu um ferm-
ingu barna: „Uppeldismálaþingið telur
eðlilegt, að börn fermist á því ári, er
skyldunámi lýkur. Tryggt sé, að ferm-
ingarundirbúningur trufli ekki skólastörf
barnanna“. í tilefni af þessari samþykkt
leitaði Foreldrablaðið álits fræðslumála-
stjóra og nokkurra skólastjóra á þessu
máli og birti svör þeirra í 6. tbl. síðasta
árgangs, sem kom út í nóvember s. 1.
Blaðið hefur einnig leitað álits þjónandi
presta í Reykjavík og birtir nú svör sex
þeirra.
Séra Jón Auðuns dómprófastur:
Foreldrablaðið hefur beint þeirri spurn-
ingu til mín, hvort ég álíti að færa eigi
til fermingaraldur unglinga til samræmis
við breytinguna, sem gerð hefur verið á
skólalögunum.
Eg get enn ekki svarað þeirri spurn-
ingu játandi. Ekki vegna þess að ég fall-
ist ekki á ýms rök fræðslumálastjóra og
skólastjóra, heldur vegna hins, að ég er
ekki viss um, hve lengi hin nýja skipan
skólamálanna stendur. Margar raddir
hafa heyrst malsmetandi manna, sem eru
óánægðir með breytinguna. Fyrr en vitað
verður að sú skipan skólamálanna sé
komin á, er lengi muni standa, kemur að
mínum dómi ekki til mála, að breyting sé
gerð á fermingaraldri unglinganna.
Séra Jón Thorarensen:
Ég tel að skólalöggjöfinni þurfi að gjör-
breyta.
Ég tel heppilegast, að skyldunáminu —
barnaskólanáminu — ljúki á vori þess
árs, sem barnið verður 14 ára, og að fulln-
aðarpróf frá barnaskóla og fermingin fylg-
ist ávallt að sama vorið, en nám í ungl-
ingaskólum hefjist eftir þann tíma.
Séra Garðar Svavarsson:
Eins og aðstæður eru nú, álít ég, að
ekkert sé unnið við að breyta fermingar-
tíma barna frá því, sem nú er.
Séra Óskar J. Þorláksson:
Ég tel ekki ástæðu til þess, að breyta
fermingaraldri bama, frá því sem nú er.
Tel heppilegt, að fermingin fari fram það
ár, sem börnin þurfa ekki að ljúka neinu
burtfararprófi frá skólunum.
Ef börn eru seinþroska er foreldrum
frjálst að láta ferma þau síðar en nú er
gert.
Hinsvegar tel ég nauðsynlegt, að meiri
samvinna sé milli skólanna og kirkjunn-
ar, í sambandi við fermingarundirbúning
barnanna, ekki sízt það ár, sem börnin
eiga að fermast.
Séra Þorsteinn Bjömsson:
Tel eðlilegast að ferming fari fram við
lok skyldunámsins sbr. rök uppeldismála-
1 2 FORELDRABLAÐIÐ