Foreldrablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 14

Foreldrablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 14
Tígrisklóin og Sannir Vesturbæingar Fyrir nokkrum vikum fluttu blöðin fregnir af óvenjulegri siglingu á ytri höfn- inni í Reykjavík. Ungur borgari bæjar- ins var þar á ferð með frumlegan farkost og svo frumstæðan, að lögreglan þóttist vinna þarft verk með því að brjóta hann í spón og hindra þar með frekari ævintýri hins unga manns og leiðangra um saltan sjá á knerrinum þeim, sem við venjulegar aðstæður myndi kallast stigi. Enn ferskari viðburðir og æsilegri í dálkum blaðanna, skráðir feitu letri og í stíl víkingasagna, eru áflog jafnaldra hans, sem hafa skipað sér í fylkingar og herjað hvorir á aðra á götum bæjarins. Flestar eru þessar feitletruðu frásagnir án allra athugasemda. En alveg vafalaust hefði Kristur mátt spyrja margan lesand- ann: Hví hugsar þú svo illt í hjarta þínu? því að margur þeirra mun hafa áfellzt drengina og látið sér blöskra spillingu ungdómsins. Ef að venju fer, verða hinir færri, sem draga af þessum atburðum þá ályktun, sem ein er upplýstum mönnum sæmandi, að þessum unglingum þarf að sjá fyrir hollari verkefnum. Það er höfuð- skylda þjóðfélagsins að tryggja æskuna gegn eyðileggingu iðjuleysisins og þeirrar afskiptasemi, sem hindrar allt frjálst fram- tak barna og unglinga og kyrkir þar með persónuþroska þeirra, eins og rætt er um í aðalgrein þessa tölublaðs. Hvar fær eigin vilji reykvísks drengs notið sín á jákvæðan hátt? Ekki í skól- anum. I allra bezta lagi tekst kennaran- um að gera sinn vilja að vilja hans. Ekki í kvikmyndahúsinu. Ekki á götunni. Ef til vill að einhverju leyti á knattspyrnu- vellinum, ef hann hefur ekki dottið í þann pytt, sem kallast íþróttafélag, þar sem bæði er þjálfari með vilja og formaður með metasýki. En knattspyrnuvellir og önnur leiksvæði eru í litlu samræmi við þörf reykvískra drengja. Kannski heima hjá sér? Ef íbúðin er lítil — og í tilbót eign ríka mannsins — er ekkert rúm fyrir sjálfstæðan vilja lítils karls. Sé hún stór, er ekkert líklegra en hún sé jafnframt of fín fyrir einkafram- tak, sem fyrir æsku sakir beinist ekki enn að húsabraski og síldarhappdrætti á ábyrgð þjóðarinnar, heldur óþurftarverk- um á borð við það að tálga og skera, hamra og saga, gera litsterkar klessur o. s. frv. Hvar er skemman, þar sem reykvíski drengurinn finnur spýtur og spæni, hefil og sög, hamar og nagla, snúrur og snæri og getur veitt sköpunarhneigð sinni út- rás sem frjáls maður, laus við afskipti og umvandanir þeirra miklu’manna, mín og þín, mömmu og pabba, kennara og lögreglu? Það er engin skemma. Það er bara fín og voðalega dýr stofa (svo að þær verði ekki of margar fyrir pening- ana?) með kennara, voðalega fínum og dýrum eftirlitsmanni (svo að hann verði ekki of lengi að vinna fyrir peningun- um?), sem segir, þegar verst gegnir: Nú er tíminn búinn, nú getið þið farið heim! Hvar eru leiksvæðin, þar sem kátur hópur getur farið í feluleiki á húmdökk- 1 4 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.