Foreldrablaðið - 01.05.1952, Page 15
um haustkvöldum eða í stjörnudýrð vetr-
arins, eins og við gerðum í bernsku okk-
ar? Nei, það er ekki einu sinni hægt að
slást, löggan kemur og skakkar leikinn,
og málið er orðið alvarlegt. Það var reynd-
ar orðið alvarlegt áður, því að hér er
barizt af engu minna kappi en í kúreka-
myndum og á hnefaleikamótum, þótt enn
skorti á leikni og hörku kúrekans að
hjálpa keppinautunum inn í eilífðina.
Hinn ungi Reykvíkingur fær ekki einu
sinni að sigla óáreittur á sínu eigin fleyi.
Lögreglan kemur og sýnir honum fram
á, að stigi sé ekki vel til siglinga fallinn,
slíku fari sé heppilegast að lóga. Og Reyk-
víkingurinn ungi sér, að hann hefur verið
í lífsháska, hann horfir þurrum augum á
skip sitt höggvið upp og þakkar lögregl-
unni björgunina. Svo er ekkert meira.
Og þegar heim er komið? Er fjölskyldu-
lífið ekki fátæklegra en áður var, þrátt
fyrir öll þægindi nútímans? Hvað á fjöl-
skyldan margar samveru- og samvinnu-
stundir daglega? Ríkir ró og kyrrð á
heimilinu? Á fjölskyldan sameiginlegar
hátíðastundir reglulega, sambærilegar við
húslesturinn á sunnudögum, sællar minn-
ingar? Ég er lítill talsmaður kennisetn-
inga og trúgæðis yfirleitt, en mér er ljóst,
að þessi stund hafði sína þýðingu fyrir
fjölskylcTuna, meðan hún var rækt, og
þar með fyrir alla framtíð barnanna.
Nútíminn hýður bömum höfuðstaðar-
ins margt gott, sem feður og mæður skorti
að meira eða minna leyti. íbúðin er yfir-
leitt betri og þægindin meiri, matar-
skammturinn er ríflegri og heilnæmari,
eins og vöxtur unglinganna sýnir, glæsi-
legir skólar svala námsþorsta vel flestra,
einatt jafnvel um of, alls konar trygging-
ar, eftirlit og hjálp hefur stóraukizt o. s.
frv. o. s. frv. En um leið hefur reykvíski
drengurinn verið sviptur öðru, sem hon-
um er nauðsynlegt til þroska, engu síður
en matur og drykkur. Samtímis verður
það æ stærri hluti íslenzkra drengja, sem
Útgefandi: Stéttarfélag barnakenn-
ara í Reykjavík. Útgáfuráð: Guðjón
Jónsson, Jens E. Níelsson, Skúli
Guðmundsson, Valdimar Ossurarson
og Þorsteinn Olafsson. Afgreiðslu-
maður: Jens E. Níelsson, sími 6157.
, Verð: kr. 20,00 árgangurinn,
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
^________________________________________J
uppeldiskjörum hans lýtur, ófrjálsum og
ónáttúrlegum, þrátt fyrir allar framfarir
og glæsibrag. Systir hans er ekki jafn illa
sett, svo er kvenlegum dygðum fyrir að
þakka, hún finnur sér miklu auðveldleg-
ar verkefni, svo sem að hekla, prjóna og
sauma, hjálpa mömmu í eldhúsinu eða
taka til, og er hún þó ekki heldur öfunds-
verð af aðstöðu sinni.
Engin bót skal hér mælt þeim aðförum,
sem Tígrisklóin og systurfélög hennar
hafa beitt. Að sönnu eigum við sjálfsagt
eftir að fá klerka og kennimenn, alþingis-
menn og bófa, auðmenn og lánleysingja
úr þeim mislita hópi. Reynsla orustunnar
mun sjálfsagt verða þeim öllum til nokk-
urra nytja, og minningin úr hita bardag-
ans á efalaust eftir að ylja þeim um hjarta-
ræturnar, þegar allur dugur hefur verið
úr þeim urinn. Samt eru þessir atburðir
harmsefni. Þeir eru harmsefni vegna
þess, hversu himinhrópandi tákn þeir eru
um vanrækta æsku. Geti þeir ekki komið
þjóðinni til að rumska, þá er hún sannar-
lega í hættu stödd.
G. J.
FORELDRABLAÐIÐ 1 5