Foreldrablaðið - 01.05.1952, Page 13

Foreldrablaðið - 01.05.1952, Page 13
þingsins. Finnst mér, að fermingarundir- búningur nái jafnan betur tilgangi sínum eftir því sem börnin eru eldri og þrosk- aðri. Séra Jakob Jónsson: Þrennt virðist mér mæla með því, að fermingin fari ekki fram fyrr en barnið er orðið 14 og helzt 15 ára. — Á þessu aldursskeiði virðist andlegur þroski og skilningur barnsins taka miklum fram- förum á tveimur árum. I öðru lagi hefur unglingastigið verður sameinað gagn- fræðaskólunum, og börnin illu heilli færð upp úr bamaskólunum einu ári fyrr en áður tíðkaðist. Seinkun fermingarinnar kynni ef til vill að vega eitthvað upp á móti þessari öfugþróun kenslumálanna. Börnin mega gjarnan fá að líta á sig sem börn, meðan þau eru börn. — I þriðja lagi ætti orðaforði barnanna að vera heldur meiri, séu þau orðin 14 eða 15 ára. Orða- forði reykvískra barna er yfirleitt svo hörmulega lítill, að það er varla hægt að tala við þau annað en smábarnamál. Seinkun fermingarinnar er þó ekki al- veg eins auðvelt mál og í fljótu bragði virðist. Foreldrar leggja t. d. mikið kapp á að reyna að fá börnin fermd sem yngst, börnunum til stórskaða. Ástæðan er mjög oft sú, að foreldrarnir vilja koma í veg fyrir þetta, sem skólastjórarnir sumir hverjir óska eftir, sem sé að ferming og fullnaðarpróf fari saman. Þegar skólakerf- inu var breytt síðast, komst til tals á Synodus að seinka fermingunni, en þá var það einmitt af flestum álitið óheppi- legt, að spurningarnar hjá prestinum og undirbúningur undir strangasta prófið færi saman. Flestir skólastjórarnir geta þess í grein- nm sínum um þetta mál, að stundum sé arekstur milli prestanna og skólanna, og er það rétt. Samþykkt menntamálaþings- ins kemst svo að orði: „Tryggt sé, að ferm- ingarundirbúningur trufli ekki skólastörf barnanna“. — Þessari setningu vil ég snúa við og hafa hana þannig: „Tryggt sé, að skólastörf barnanna trufli ekki ferming- arundirbúninginn“. — Sem uppeldisstofn- un í landinu er kirkjan eldri en skólarnir, og hefur þess vegna fyrsta rétt í umferð- inni. Raunar er ég fyllilega sammála skólastjórunum um það, að æskilegast sé, að skólastarfið sé ótruflað af spuming- unum, en þá einnig spurningarnar ótrufl- aðar af skólunum. En þá kemur vandinn mikli, hvernig hægt sé að skipuleggja kennsluna hjá skóla og kirkju, svo að ekki komi til árekstra. Eg er sannfærður um, að hægt væri að leysa þennan vanda, ef þegar í stað væri unnið að því að samræma stundaskrár prestanna og skólanna. Vildi ég því leggja til, að nú þegar yrði gerð alvarleg tilraun til að undirbúa slíka allsherjar stunda- skrá fyrir næsta vetur. Sennilega væri þá réttast, að prestarnir semdu nú þegar stundaskrá, miðaða við þann fjölda náms- flokka, sem þeir gera ráð fyrir að hafa næsta vetur, og fræðslustjórarnir létu síðan athuga undir eins, hvar þeir rækj- ust á stundaskrár skólanna. Mætti þá laga hvað eftir öðru í tæka tíð. — Hitt er alltaf ógjörningur að breyta miklu eftir að kennsla er hafin. — Niðurstaða mín er sem sagt þessi: 1) Ég álít heppilegra, að börnin séu fullra 14 ára og jafnvel 15, er þau fermast. 2) Ég óttast, að undirbúningur undir fulln- aðarpróf samtímis hafi truflandi áhrif á kennslu prestanna. 3) Hvort sem börnin fermast fyrr eða seinna, er bráðnauðsyn- legt að samræma betur stundaskrár skóla og kirkju. Það er hægt — að vísu með ærinni fyrirhöfn. Sé það gert, er ég viss um, að allir hlutaðeigendur verða ánægð- ari. Af viðkynningu minni við skólastjóra Reykjavíkur veit ég, að þeir hafa áhuga á því, engu síður en prestarnir, að sam- vinnan verði sem bezt. FORELDRABLAÐIÐ 13

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.