Foreldrablaðið - 01.01.1960, Page 5

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Page 5
Eiríkur Stefánsson: IjlppeÍcliÁ L ocý í 0L0L euna Almennt mun talið, a. m. k. þar, sem svonefnd vestræn menning ríkir, að tvennt valdi mestu um það, hvernig líf einstaklingsins ræðst. Þetta tvennt er upplag (þ. e. erfðir eiginleikar) og uppeldi. Ekki kemur mönnum saman um það, hvor þessara þátta sé gildari. Og örðugt mun að sanna nokkuð þar um. En margt styður málsháttinn forna: „Náttúran er náminu ríkari.“ Hinu verður þó ekki móti mælt, að oft ræð- ur uppeldi úrslitum um framtíð manna. Og þar sem þjóðfélaginu er naumast mögulegt að ráða nokkru um eiginleika verðandi þegna sinna, hversu æskilegt sem það kynni að vera, verður það að láta sér nægja að taka við þeim efnivið, sem fyrir hendi er og reyna að gera úr honum svo góða gripi sem kostur er á. íslenzka þjóðin hefur nú búið meir en 10 aldir í landi sínu, en bamaskóla eignaðist hún ekki almennt fyrr en á fyrsta tug þessarar aldar. Fram að þeim tíma má segja, að uppeldi barna hafi algerlega farið fram á heimilunum. Það er viðurkennt, að gömlu sveita- heimilin okkar hafi verið furðugóðar uppeldisstofnariir. Því ollu fyrst og fremst ytri aðstæðúr. Kostir þeirra voru: Kyrrlátt og reglubundið líf, dag- legar samvistir barnanna við fullorðið fólk, en þó alloft einvera, umgengni við dýr og jarðargróður, og — að síðustu — nóg að vinna allan ársins hring (stundum reyndar of mikið), og það oft ábyrgðarstörf. Margt fleira mætti telja þessu upp- eldi til gildis, t. d. það, að bömin voru ekki ofmötuð, hvorki líkamlega né and- lega. Hins vegar hafði þessi uppeldismáti einnig mikla galla. Má þar telja fá- breytni, sem oft varð til þess, að hæfi- leikar duldust, og einnig hitt, að stund- um var viljandi reynt að kæfa hæfi- leika barna. Var það oft vegna rang- snúins aldaranda, en einnig gat fátækt verið ástæðan. Ekki er heldur ástæða til að draga fjöður yfir það, að mörgum börnum var á þeim tímum ofþyngt með vinnu, og að líkamlegar misþyrm- ingar þekktust alltof víða. Breyttir þjóðhættir ollu því, að þétt- býli myndaðist. Og nú um hálfrar ald- ar skeið hefur fólksstraumurinn legið þangað með vaxandi þunga. Sveita- FORELDRABLAÐIÐ 3

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.