Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 6

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 6
heimilin eru nú flest mjög fámenn. Það, og fleira, veldur því, að uppeldis- áhrif þeirra eru nú ekki jafnsterk og fyrr. f bæjunum hefur aðstaðan alltaf verið önnur. En einnig þar virðist stefna í þá átt, að heimilin verði æ máttar- minni til þess að inna uppeldið af höndum svo að vel sé. Er auðvelt að færa rök að því, og koma nokkur þeirra fram hér síðar. í seinni tíð hefur þeirrar skoðunar allmjög orðið vart, að skólarnir gætu tekið að sér uppeldi barnanna að miklu leyti, eftir að þau fara að ganga í skóla. Ég tel þetta mjög varasama skoðun, jafnvel háskalega. Barnaskólarnir ís- lenzku eru upphaflega hugsaðir sem fræðslustofnanir. Nokkur breyting hef- ur að vísu orðið á þessu, og mun nú til þess ætlazt, að kennarar sinni uppeldis- starfinu jafnhliða fræðslunni, þótt eng- in skýr fyrirmæli séu þar um. Áreið- anlega vilja allir kennarar rækja þenn- an þátt starfsins vel og koma þannig til móts við foreldra. En þeim er þar ekki hægt um vik. Skal ég nú skýra það nánar. Börnin eru skólaskyld 7 ára.. Athug- ið vel: sjö ára. Þá er bernskan liðin að hálfu og vel það. Á þessum sjö árum hefur verið lagður grunnur að mótun bamsins. Kennarinn hefur mörg börn saman til umönnunar. Þessi börn eru hvert öðm ólík að eðli og uppeldi. Kenn- arinn þarf langan tíma til þess að kynn- ast þeim eins og þau eru í skólanum. Enn meiri tíma kostar það hann, ef hann reynir að kynnast forsögu þeirra, hvers um sig, heimilum þeirra og að- stæðum öllum, en þess þarf hann, ef honum er ætlað að sinna uppeldi þeirra að nokkru ráði. Við skulum hugsa okkur, að um sé að ræða mjög glöggan og dugandi kenn- ara. Gerum enn fremur ráð fyrir því sjaldgæfa, að honum hafi tekizt að ná sambandi við heimili allra barnanna, áður en fyrsta námsári lýkur. Og nú ætlar hann vissulega að verða að liði í uppeldisstarfinu. En hvaða möguleika hefur hann til þess? Fyrsta námsárið eru börnin 150 mín. í skólanum daglega. Kennarinn hefur þannig um einn tíunda hluta sólar- hringsins til runráða. Og ekki svo sem hann megi taka þann tíma allan til að sinna uppeldinu sérstaklega. Hann þarf að kenna börnunum að lesa, reikna og skrifa, já, og ýmislegt fleira. Ekki dugar að vanrækja það. Foreldrar spyrja fyrst og fremst eftir því, hvernig gangi með lærdóminn. Þeim er undir niðri lióst, að skólarnir eru einkum fræðslu- stofnanir. Einkunnir eru gefnar fyrir lestur o. fl. Skólastjóri lítur eftir þeim. Skýrslur eru gerðar, og þær athugaðar á hinum hærri stöðum. Lærdómur og einkunnir er það, sem mest er spurt um. Uppeldisáhrif eru alltaf óákveðin og óviss. Þau er ekki hægt að sýna á skýrslum eða með tölum. En við skulum fylgja kennaranum okkar svolítið lengra, þessum, sem lagði svo mikið á sig til þess að kynnast böm- unum þegar á fyrsta skólaári. Ef hann kennir sömu bömunum öll árin í barna- skóla, hefur erfiðið vissulega borgað sig. En nú getur allt eins farið svo, að ann- ar taki við þeim næsta ár. Ýmislegt get- ur valdið þvi, að skipta þurfi run kenn- ara. Og sjaldgæft er, að kennari hafi sama barnahópinn öll skólaárin. Það er ekki heldur ætíð æskilegt. Nú kann einhver að hugsa: Á að halda því hér fram, að börnin verði alls ekki fyrir neinum uppeldisáhrifum í skólunum? Fjarri fer því. Vissulega verða öll böm fyrir slík- 4 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.