Foreldrablaðið - 01.01.1960, Page 9

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Page 9
Mín skoðun er sú, að kennarinn hafi foreldravald yfir börnunum, meðan þau eru í hans umsjá. Og þó að refsingar séu nú mjög úr móð — líklega um of —, hygg ég, að smásnoppungar þekkist enn sums staðar heima. En hafi kenn- ari leyfi til að refsa á þennan hátt, fylgir því þung ábyrgð, og þaS skyldi hann muna vel. Kæru foreldrar. Ég hef ef til vill verið berorður um of og opinskár. Það er gert með fullri vitund. Ég hef ekki trú á loðmollu og kjassmælum einum saman. Sú er og bót í máli, að ég ber einn ábyrgð þessara orða minna. Ber ekki að taka þau sem rödd neins sér- staks barnaskóla. Hins vegar veit ég, að meginefni þessa máls er í samræmi við störf og stefnu skólanna. Og ég er þess fullviss, að ég tala fyrir munn kennara almennt, þegar ég segi: Talið við okkur um þau vandamál, sem snerta dvöl harna ykkar hér í skólanum. Hvort heldur vandinn er í sambandi við nám- ið, samlíf barnanna eða afstöðu barns til kennara þess. Ykkur mun ætíð verða vel tekið, ef þið komið í góðum hug, knúin af innri þörf. Og komi nú barn- ið heim sært og stórlega móðgað og segi eitthvað, sem nærri lætur hárin rísa á höfði ykkar, þá takið á stillingunni. Þið reiðist ef til vill. Slíkt er mannlegt. En reynið þá að stilla ykkur um að fara í símann eða hlaupa í skólann, meðan svo er ástatt. Sjaldan liggur mjög mik- ið á. Athugið, að barnið hafði reiðzt, og því er ekki víst, að frásögn þess hafi verið alveg óvilhöll í garð andstæðings- ins. „Mitt barn skrökvar ekki“, hef ég heyrt mæður segja. Böm em misjafn- lega sannsögul, en fáum eða engum hörnum má að fullu treysta, þegar skapið er úr jafnvægi. Ég hef alltaf litið svo á, að í öllu upp- eldi, bæði heima og í skóla, eigi góð- vildin — kærleikurinn -—• að skipa önd- vegið. En vel skal greint milli kærleika og þess hugarfars, sem birtist í dekri. Dekrinu fylgir undanlátssemi, og í skjóli þess vex eigingirni, sjálfsaumkun, frekja og fleira af slíku tagi. Kærleik- urinn er hlýr og mildur, en getur líka orðið beiskur og sár. Barn, sem elst upp umvafið sönnum kærleika, þolir vel aga. Jafnvel hin dýpstu sár gróa fljótt við yl ástúðarinnar. En sjaldan mun þurfa að refsa hart, þar sem kærleik- urinn ríkir. Sá grunur hefur læðzt að mér — ég vona, að hann sé rangur —, að nútíma mæður, einkum þær yngri, sýni börn- um sínum ekki nógu oft verulega hlý atlot. Hins vegar er áreiðanlegt, að þær eru margar eftirgefanlegar um of. Litla barnið þarf að finna móðurástina oft. Það þarf að fá að hvíla i faðmi mömmu, finna hlý atlot og heyra gælu- og ást- arorð mælt mildum rómi. Slíkar stund- ir eru barnssálinni það sama og dögg og sólskin jurtunum. Hitt er því miður allt of algengt, að talað sé við smábörn í stríðum tóni og mjög hratt. Það er alveg nauSsynlegt að tala hægt og ró- lega við lítil börn, og þœgilegri rödd. Baddblærinn hefur mikið að segja. Það væri freistandi að tala meira um þessi efni, en rúmið leyfir það ekki. Ég vil þó aðeins drepa á þrennt enn. Oft er kvartað undan sælgætisfíkn barna. Ég hef oft séð fullorðið fólk kaupa karamellu, lakrísbita eða súkku- laðistykki og stinga upp í smábörn í búðinni, stundum eftir að þau hafa rell- azt um það, eða án þess, aðeins sér til gamans. Þá má oft sjá börn, sem eru svo lítil, að þau þurfa að teygja sig til þess að ná upp á búðarborðið, koma ein með FORELDRABLAÐIÐ 7

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.