Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 10

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 10
aurana sína (sem einhver hefur gefið þeim) og biðja um „gott“ á sínu ófull- komna máli. Og gefur ekki fullorðið fólk bömum peninga og segir þeim að kaupa sér „gott“ fyrir þá? Og svo er varla hægt að þverfóta fyrir sjoppum og öðrum sælgætisverzlunum. Ég spyr: Er nokkur furða, þótt börn venjist á að éta sælgæti? Einnig er kvartað yfir því, að börn hafi ekki frið heima hjá sér við nám, vegna þess að félagarnir séu sífellt að spyrja eftir þeim. Þetta er því miður rétt. En skyldi nú ekki vera eitthvert samband milli þess og hins, að smá- börnum leyfist að ganga út og inn um annarra íbúðir í krafti þess, að þau eru leikfélagar heimabams? Þetta verður að venju, og þar með hafa þau vanizt því að virða einskis heimilishelgina. Hið þriðja er málþroskinn. öllum ber saraan um, að þar hafi orðið aftur- för. Liggja til þess eðlilegar ástæður, sem einkum fylgja þéttbýlinu. Enn er hér í bæ fjöldi fólks, sem fékk uppeldi sitt í sveit og náði góðum mál- þroska í nánu samfélagi við fullorðið fólk, sem talaði við börnin, sagði þeim sögur, raulaði vísur og þulur og kvað rimur. Auk þess heyrðu þessi börn forn- bókmenntimar oft lesnar og lásu þær sjálf, er þau voru orðin læs. Dæmi um orðfæð barna nú og skiln- ingsleysi á íslenzku máli eru mýmörg. Er ekki ástæða til að nefna þau hér. En gerir þetta nú svo mikið til? Já, vissulega. Tungan er lykill að bók- menntum þjóðarinnar, og þekking á henrii og kunnátta í meðferð hennar skilyrði fyrir framtíðarbókmenntunum. Islenzk alþýða hefur alla tíð verið mjög vel þroskuð á þessu sviði. Ef daglegt málfar verður fátæklegt og tungan spillist, mun fleira af hinu lakara sigla í kjölfarið. Stephan G. Stephansson mælir speki, er hann segir: „Greiðasta skeið, til að skrílmenna þjóð, er skemmdir á tungunni að vinna.“ Kennarar munu hafa fullan hug á að standa gegn þvi, að svo verði. En hér sem annars staðar eiga foreldrar fyrri leikinn. Ég vil því hvetja ykkur, for- eldar, já, eggja ykkur lögeggjan að reyna að efla málþroska bama ykkar. Til þess em mörg ráð, en það fyrsta og sjálfsagðasta er, að fullorðna fólkið tali við börnin og reyni þá auðvitað að vanda mál sitt. Ég vil fullyrða, að sjö ára barn, sem öðlazt hefur allmikinn orðaforða og þar með nokkurn málþroska, en kemur ólæst í skólann, er búið betra veganesti en hitt, sem öfugt er ástatt um. Á mál- þroskanum hvílir allt íslenzkunám. Mæður. Til ykkar beini ég síðustu orðum mínum: Tungan er við ykkur kennd. Mööur- mál. Hvað felst í því? Viðurkenning á göfugu hlutverki, sem ykkur er fengið, en jafnframt sú skylda, að bregðast ekki. Jónas kvað: Ástkæra, ylhýra málið, og allri rödd fegra, blíð sem að barni kvað móðir á brjósti svanhvítu. Móðurmálið mitt góða, hið mjúka og ríka, orð áttu enn eins og forðum mér yndi að veita. Málið veitir ekki yndi, nema það hafi verið numið. Börnin þurfa að drekka það í sig með móðurmjólkinni — á brjósti svanhvítu. Lífið hér á jörð sprettur upp úr móð- Framh. á bls. 12. 8 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.