Foreldrablaðið - 01.01.1960, Qupperneq 13
ana, haldið fyrirlestra og haft námskeið
fyrir kennara. Hún leiðbeindi aðallega
í starfrænum aðferðum.
Ekki fer hjá því, að námskeið sem
þessi örvi kennara til að reyna nýjar
aðferðir. En þau kennsluform, sem
sænsku leiðbeinendurnir hafa kynnt,
munu ef til vill reynast íslenzkum
kennurum erfið í framkvæmd, meðan
svo mikil áherzla er lögð á skrifleg próf,
sem gert er nú í barnaskólum okkar.
Kennarar þurfa að ýta þeim af hönd-
um sér.
— Já, margir munu taka undir það.
En hvernig er það hér í Reykjavík, -—■
vantar kennara?
Nei, ekki er það.
— Viltu að lokum geta um eitthvað,
sem ekki hefur verið spurt um, en
varðar skólamálin?
Já, ég vil gjarna geta þess, að hér er
stefnt ákveðið að því að auka húsrými
skólanna — að fá nóg og gott hús-
næði.
Eftir þvi, sem nú horfir, ætti þrí-
setningin að vera úr sögunni eftir tvö
til þrjú ár. Og bráðlega ætti einnig að
vera hægt að segja upp leiguhúsnæði
fyrir skólana.
En ekki er einhlítt að eiga rúmgóð
og glæsileg skólahús. Mest veltur á,
hvernig til tekst um þau störf, sem þar
eru unnin. Einnig þar er ýmislegt að
gera, sem vonandi miðar til góðs. Má
þar minna á námskeiðin, sem áðan var
getið. Þá hafa verið ráðnir nokkrir
kennarar, sem eiga að leiðbeina í viss-
um efnum, t. d. í kennslu lestregra
barna (Ásgeir Guðmundsson) og
kennslu vanþroska barna (Magnús
Magnússon). Þá hefur Kristján Sig-
tryggsson verið ráðinn til að hafa eftir-
jh ! ■/ V A l ^ tyfl-
Kennsla háfst í Laugarlœkjarskólanum 19. október, og er þessi mynd tekin, er fyrstu itemend-
unum er raðaö í bekki.
FORELDRABLAÐIÐ 11