Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 14
lit með reikningskennslu. Þessir kenn-
arar hafa samt sem áður nokkra
kennslu, hver í sínum skóla, hálfa
kennslu eða minna.
Þá er það nýtt hér í Reykjavík,
að sálfræðingur hefur verið ráðinn til
að starfa á vegum fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur. Er það Jónas Pálsson. Á
hann að vera foreldrum og kennurum
til leiðbeiningar um uppeldi og nám
barna á skólaskyldualdri og veita sér-
fræðilega aðstoð við einstök börn, svo
að nám þeirra og skólavist komi að sem
beztum notum.
Blaðið þakkar fræðslustjóra greinar-
góð svör. Því þykir ánægjulegt að geta
flutt góðar fréttir.
Myndin er úr hinum nýja HlíSaskúla. Börnin fara í raSir, áSur en þau ganga í kennslustund.
Uppeldið
Framh. af bls. 8:
urskauti. Það skal alið við brjóst móð-
ur, umlukt örmum hennar og vermt
undir vanga, leitt af ljúfri hönd í átt
til hinna ókunnu, heillandi landa. Sé
svo, mun lengi spurt:
Má ég þetta, mamma?
12 FORELDRABLAÐIÐ