Foreldrablaðið - 01.01.1960, Side 15

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Side 15
Jón G. Þórarinsson: Tónlistarkennsla í Kanadískum skólum. 1 byrjun september s. 1. ár fór ég til Toronto, Ontario, Kanada. Erindi mitt til Kanada var að nema tónlistar- kennslu, hljómsveitarst.iórn, kórstjórn og organleik við háskólann í Toronto. Ég hafið kynnzt tónlistarkennslu í almennum skólum í Bandaríkjunum, er ég dvaldist þar á Fulbright-styrk um sex mánaða skeið árið 1957—58. Ég varð mjög hrifinn af þeirri mennt- un, sem amerískir tónlistarkennarar hlutu, og einsetti mér að reyna að kom- ast aftur vestur um haf og afla mér þeirrar menntunar með einhverju móti. Síðastliðið ár hlaut ég Canada Coun- cil styrk, og fór ég þá til Toronto og lét innrita mig til náms við háskólann þar í borg. Hlaut ég þjálfun í kennslu hinna ýmsu hljóðfæra, og þar sem ég ráðgerði að dveljast aðeins eitt ár vestra, lagði ég áherzlu á blásturshljóðfæri, aðal- lega trompet, horn, básúnu, flautu og klarinett. Ekki veit ég, hvort tækifæri gefst fyrir mig að kenna hljóðfæraleik í þeim skóla, sem ég starfa við, en vissulega mun ég athuga alla möguleika í því sambandi. Kvöld nokkurt á jólaföstu síðastliðið ár var ég, ásamt konu minni og 14 ára gömlum syni okkar, staddur í aðaltón- leikahöll Torontoborgar í Kanada. — C.B.C.-útvarpið kanadiska flutti allar sinfóníur Beethovens, eina í hverri viku, og var síðasta sinfónían, eða sú níunda, flutt í Massey Hall, aðaltón- leikahúsi borgarinnar, þar sem ekkert annað tónleikahús rúmaði eins vel hinn stóra kór og hljómsveit, sem flutti verk- ið. C.B.C. sendi mér aðgöngumiða á alla hljómleikana, og hafði ég því ver- ið viðstaddur flutning á átta sinfóníum Beethovens og hafði nú auk þess feng- ið aðgöngumiða á síðustu hljómleikana fyrir konu mína og son. Meðan söngfólk og hljóðfæraleikarar voru að koma sér fyrir á sviðinu, virti sonur minn fyrir sér umhverfið for- vitnum augum. Hann hafði aldrei kom- ið í slíka hljómleikahöll fyrr, og meðan beðið var eftir stjórnanda verksins, hvíslaði hann að mér: „Ef ég mætti óska mér einhvers, mundi ég óska þess að fá að spila í svona fallegu húsi. En það verður nú aldrei,“ bætti hann við. Hálfum öðrum mánuði síðar var hann kominn upp á leiksvið í sama húsi ásamt hljómsveit skólans, sem hann sótti, og lék hljómsveitin á sam- FORELDRABLAÐIÐ 13

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.