Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 17

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 17
Hallelujakórinn eftir Handel, með kór og hljómsveit, og lokaþátt úr sinfóníu eftir Brahms. Dansleikur var yfirleitt haldinn á eftir vorhljómleikunum, en ég verð að segja, að hann féll alveg í skuggann af því, sem áður gerðist. Mikill hluti unglinganna fór heim til sín að tón- leikunum loknum. Þau voru sæl og glöð eftir vel heppnaða tónleika og höfðu uppskorið ríkuleg laun fyrir strangar æfingar og mikla vinnu. Enginn taki orð mín svo, að ég telji eftir unga fólkinu að fá sér snúning. En ég verð að segja, eftir að hafa kynnzt tónlistarlífi í amerískum skólum, að ís- lenzkir unglingar fara mikils á mis, þar sem tónlistarlíf er ákaflega lítil- fiörlegt í unglingaskólum okkar og í mörgum tilfellum er dansleikurinn einasta áhugamálið. Hér er vissulega óplægður akur og væri vel, ef viðkomandi aðilar gerðu sér grein fyrir því, hversu blómlegt tón- listarlíf í hverjum skóla er göfgandi fyrir skólabraginn. Kanada er ekki eins rikt land og Bandaríkin. Þess vegna getur það ekki lagt eins mikið fé í tónlistarkennslu og tónlistarlíf skólanna og æskilegt væri frá þeirra sjónarmiði. Það er athyglisvert, hvernig þeir skipa þessum málum í barnaskólum sínum. Þar sem ekki eru tök á því, að sérmenntaður söngkennari kenni börn- unum á hverjum degi, er hinn almenni kennari hvattur til þess að hlaupa und- ir bagga með söngkennaranum og kenna börnunum einnig söng daglega, ásamt öðrum námsgreinum. Til þess að þetta megi takast, verður hinn al- menni kennari að kunna eitthvað fyrir sér og geta kennt tonika-do-kerfið ásamt flestu því, sem börnum er kennt í söng á barnaskólastiginu. Það er vitanlega athyglisvert, hve góðum árangri almennir kennarar ná í þessari grein. Engan þarf að undra það, við þekkjum það af eigin reynslu, að sumir kennarar hafa mjög gott lag á því að láta börnin syngja. Væri at- hugandi fyrir okkur að fara út á sömu braut, sérstaklega þar sem sífellt virð- ist vera skortur á hæfum söngkennur- um. Starf sérmenntaðs söngkennara leysir aldrei almennan kennara frá þeirri skyldu að láta bömin syngja, hvorugur leysir annan af hólmi. Gott samstarf er hins vegar mikill ávinn- ingur fyrir þessa mjög svo nauðsynlegu kennslugrein. En hvað skal gera, ef almennur kennari treystir sér ekki til þess að stjórna söng? Það væri vissulega ekki rétt leið að meina ungum kennaraefn- um aðgang að kennaraskólanum vegna þess eins, að þeir gætu ekki stjómað söng. 1 slíkum tilfellum er eðlilega þörf á því að hjálpa þeim og undirbúa þá, til þess að þeir verði færir um að stjórna söng barnanna, sem þeir kenna, þar sem söngurinn hefur svo miklu hlutverki að gegna í sambandi við upp- eldi og þroska barnsins. Skylt er að geta þess, að mikill f jöldi almennra kennara sinnir þessu hlut- verki með miklum sóma. En þar sem við höfum það fyrirkomulag, að sami kennarinn fylgir barninu í flestum til- fellum allt barnaskólastigið, er þeim mun meiri þörf á því, að allir kennarar geti látið börnin sín syngja á hverjum degi, ekki sízt þar, sem almennum morgunsöng verður ekki við komið. Söngurinn er undirstaða tónlistar- náms í almennum skólum. Kanadiskir FORELDRABLAÐIÐ 15

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.