Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 18

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Síða 18
skólar eru góð fyrirmynd að því leyti, að hjá þeim fær enginn nemandi að hefja hlióðfæranám, fyrr en hann hef- ur tileinkað sér almenn undirstöðu- atriði söngfræðinnar í gegnum söng- kennsluna. Þess vegna er ekki kennt á hljóðfæri í kanadiskum barnaskólum, fyrr en á síðustu árum barnaskólans. Athyglisvert er, að jafnan eru valdir til hljóðfæranáms þeir nemendur, sem skara fram úr í almennum greinum. Hjá þeim má vænta betri árangurs og þeir eiga að geta tekið tíma frá öðrum námsgreinum fremur en þeir nemend- ur, sem eiga erfitt með almennt nám. Því hefur oft verið haldið fram, að fslendingar væru mjög söngvinir, jafn- vel svo, að til undantekninga megi telj- ast. Ég leyfi mér að efast um sannleiks- gildi þeirra fullyrðinga. Ef frá er tal- inn bílasöngurinn frægi, sem er al- íslenzkt fyrirbæri og mundi ekki flokk- ast undir nafnið „söngur“ í neinu öðru menningarriki, heyrist sjaldan sungið, nema þá helzt, ef menn eru undir áhrifum áfengis. Þjóðin þekkir tæplega sín eigin þjóð- lög, en flestir kunna María, María. Sleppum því, ræðum heldur um þau atriði, sem oftast valda misskilningi í sambandi við barnasöng. Oft hef ég heyrt þá skoðun, að það sé ekki nema fyrir fáa útvalda að iðka hina göfugu sönglist. Mikill hluti barna væri laglaus og þeir, sem ekki hafi sér- gáfu á sviði sönglistar, eigi þar hvergi nærri að koma. Þetta er háskalegur misskilningur. Fyrir nokkrum árum prófaði ég öll börn í þeim barnaskóla, sem ég starfaði við. Árangurinn var sá, að mikill f jöldi barna var að einhverju leyti hljóðvillt- 16 FORELDRABLAÐIÐ ur, gerði sér ekki grein fyrir tónhæð, söng lagið jafnvel í annari tóntegund en spilað var. En þau sungu lagið að mestu leyti rétt. Með góðri tilsögn áttu þau að vera fær um að syngja rétt, þeg- ar þau yfirgæfu skólann. Laglaus börn, börn sem gátu engan veginn sungið rétt lag, voru sárafá, ekki yfir fimm af hundraði. 1 þeim hópi voru efalaust einhver börn, sem hefði mátt hjálpa, ef tími og aðstæður leyfðu, börn, sem áttu erfitt með að samræma innri heyrn og stillingu raddbanda. Þau gátu sagt til, hvort lagið væri spil- að rétt, en áttu erfitt með að gera sér grein fyrir því, hvaða tóna þau sungu. Það vill brenna við, að foreldrar og aðrir, sem starfa með börnunum, stimpli þau laglaus og valdi með því óbætan- legu tjóni. Ef trúin á eigin getu er brostin, er ekki að vænta framfara. I raun og veru getum við ekki gefið yfirlýsingu um það, að barn sé lag- laust, en ef til vill á síðustu árum barna- skólanáms og þá því aðeins, að barnið hafi notið tilsagnar góðs söngkennara allt frá því að það hóf skyldunám og geti þó engan veginn sungið einfalt lag, sem ætti að vera börnunum vel kunnugt. Jafnvel þá mundi ég ekki gefa neina slíka yfirlýsingu. Til eru þekktir barna- söngkennarar, sem halda því fram, að öllum hljóðvilltum börnum megi hjálpa með réttum aðferðum. Enginn þurfi að vera laglaus. Þess vegna viðurkenni ég aldrei þetta orð „laglaus“. Sönglistin á of marga óvini vegna þessa eina orðs. Ég held ávallt opnum dyrum fyrir þá, sem eiga erfitt með að syngja rétt. Við vitum, hverjir það eru, börnin og ég. Frá fyrstu byrjun reyn- um við í sameiningu að hjálpa þeim, sem eiga erfitt með að finna lagið, og

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.