Foreldrablaðið - 01.01.1960, Page 26

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Page 26
leysa þessar þrautir af hendi, þarf viss- an þroska, og skólaþroskaprófin miða að því að gefa upplýsingar um, á hvaða þroskastigi hvert einstakt barn er. Til að fyrirbyggja misskilning, tel ég rétt að taka fram, að skólaþroskapróf eru ekki greindarpróf í neinum skiln- ingi. Þroskaleysi getur verið tímabilsbund- ið ástand barnsins og í fjölmörgum til- fellum nær það eðlilegum þroska á skömmum tíma. Þessi börn þurfa að glíma við alhliða þroskandi vinnubrögð fyrstu mánuði skólagöngunnar, án þess að lögð sé höfuðáherzla á kennslu í lestri og reikningi. Foreldrar ættu því ætíð að hafa samband við viðkomandi kennara fljótlega eftir að skólagangan hefst og ræða við hann um nám barns- ins. Nýjungar í atvinnuháttum þjóðar- innar hafa verið stórkostlegar seinustu árin og segja má, að þjóðin öll standi á bak við þær tæknilegu framkvæmdir, sem átt hafa sér stað. Nýjungar í skólamálum hafa e.t. v. ekki verið eins hraðar og æskilegt væri og ekki eins miklar og hinar tæknilegu framkvæmdir í atvinnulífinu. Sú nýjung í skólastarfinu, sem rætt er um hér að framan, hefur lengi ver- ið á dagskrá meðal skólamanna hér á landi. En þvi aðeins er starf þetta haf- ið hér, að skólaþroskapróf þykja nú í fjölmörgum löndum orðinn fastur og sjálfsagður liður í skólastarfinu. Ég vil endurtaka það, að skólaþroska- próf eru ekki greindarpróf. Þau miða að því að gefa upplýsingar um vissa þætti í þroska barnsins. Þessar upplýs- ingar geta verið barninu ómetanleg hjálp við byrjun skólagöngunnar. Er ekki að efa, að foreldrar, sem meir en allir aðrir hafa áhuga fyrir góðu gengi barnanna í skólanum, taki þessari nýjung vel. * ^ * % / átthagafrœfiinni fáum vifi afi búa til ýmsa hluti og teikna þafi, sem vifi höfum verifi afi tala um áfiur í tímanum, og nú ætla ég að teikna mynd af bœnum mín- um í sveitinni, en ég veit ekki alveg, hvernig ég á afi byrja . . . 24 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.