Foreldrablaðið - 01.01.1960, Side 27
Jón Þórðarson
Ýmsir foreldrar og aðrir forráðamenn
unglinga hafa oft og einatt óskað þess
við mig að fá skýringar og nánari skil-
greiningar á því, sem kallað er starf-
rænt nám eða kennsla með vinnubók-
um og öðru slíku. Og þegar svo ritstjóri
Foreldrablaðsins bauð mér rúm í blað-
inu fyrir stutta grein, fannst mér tæki-
færið berast mér upp í hendur að verða
við þessari ósk.
--------Sjálfsnám með frjálsri vinnu,
eða starfræn kennsla, er svo yfirgrips-
mikil, að engin tök er á því að lýsa
henni ýtarlega í örstuttu máli.
Vil ég því strax víkja á þá götu að
skýra í höfuðdráttum, hvernig fyrstu
sporin eru stigin, og hvað telia megi
henni helzt til ágætis.
Þegar það hefur ráðist milli kenn-
ara og nemanda að taka upp frjálst
nám, er það mikil nauðsyn að gera þeim
það fullkomlega ljóst, þegar í upphafi,
að sérstaka námsaðferð sé hér um að
ræða en alls ekki ætlunin að losa þau
við lestur og hvers konar námsskyldur.
Markmiðið er vitanlega það, að þau
með sjálfsnámi, undir forystu kennar-
ans, afli sér glöggrar og staðgóðrar þekk-
ingar á því viðfangsefni, sem fyrir val-
inu verður á hverjum tíma.
Leiðin til þess er sú, að leita sem víð-
ast til fanga. Hinn sýnilegi árangur,
vinnubókin, ber þess glöggt vitni,
hvernig unnið hefur verið. Því má
aldrei undir höfuð leggjast að brýna
fyrir nemendum elju í þekkingarleit
sinni og ýtrustu vandvirkni með allan
frágang.
Góð vinnubók ber höfundi sínum
fagurt vitni.
Eins og öllum má Ijóst vera, er
nauðsynlegt að hafa fjölbreyttan
bókakost við höndina í þessu starfi.
Er sá kostur oftast nær sá einasti, að
kennari og nemendur sameinist nm
bókaaðdrætti og séu þær bækur, sem
fengnar eru að láni, geymdar í kennslu-
stofunni til sameiginlegra afnota. Hér
mætti í leiðinni ennfremur minna á, að
þarflegt væri, að börn fengju leiðsögn
í því að hagnýta sér þá möguleika, sem
almenn bókasöfn veita, þannig að þau
kunni skil á, hvernig bækur eru flokk-
aðar eftir efni, og geti auðveldlega átt-
að sig á spjaldskrám bókasafna.
FORELDRABLAÐIÐ 25