Foreldrablaðið - 01.01.1960, Qupperneq 30
þrándur í götu, sem okkur er allt of vel
kunnugur, er þrengslin í barnaskólun-
um, þar sem margsetja þarf í hverja
stofu, en í framhaldsskólunum þrengsl-
in, rígskorðað og afmarkað námsefni
og — grýla landsprófsins glottandi í
hverju skoti.
öll viljum við farsæld og hamingju
börnum okkar til handa. En eins meg-
um við þá gæta að láta ekki kröfur
okkar og metnað vera sem ógnandi
þrumuský á hinum annars bjarta
bernskuhimni þeirra, þrumuský, sem
alla sólarsýn byrgja.
Leiðum til öndvegis meira frelsi í
námi og umfram allt leitum og leit-
um vel eftir hugðarefnum og sérgáf-
um hvers einasta barns. Hlúum að
þeim, sem hinum dýrmætustu fræj-
um. Þá mun vel fara.
Nei, ekki trufla niig.
ég er að teikna mynd
af henni kisu.
Af vcttvangi kcnnara
Framhald af bls. 32:
liðnum hafa áréttað þessar hógværu
kröfur. Ekkert jákvætt svar hefur enn
fengizt. Þessar spurningar gerast því æ
áleitnari í hugum margra kennara:
Hversu lengi eigum við að búa við
slíkt óréttlæti í launakjörum, sem raun
28 FORELDRABLAÐIÐ
cr á? Hve langan tíma mun það taka
valdhafana að skilja, hvílík öfugþróun
þetta er og hve uggvænlegar afleiðing-
ar sú öfugþróun getur haft? Síðast og
ekki sízt: Hve mikið er langlundargeð
kennara og hvað langt verður þangað
til þeir grípa til róttækari aðgerða en
það að óska eftir, að þeim verði veittar
sjálfsagðar kjarabætur.