Foreldrablaðið - 01.01.1960, Side 33

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Side 33
þarf ekki síður að byggjast á viðleitni nemandans en árangri. Þá er spurningunni um það ósvarað, hvort nemendurnir hætti ekki að leggja að sér við nám, ef núverandi fyrir- komulagi yrði eitthvað breytt. Ég tel, að tiltölulega stuttur tími af skólastarfinu sé tengdur vitundinni um próf hjá öllum þorra barna. Þau sækja ef til vill í sig veðrið síðustu dagana þar á undan, þegar bezt lætur, og ná þá dálitlu magni af skammvinnum minnisforða. Allan annan tíma í skól- anum er starfið bundið við skyldurækni og þægð, eða áhuga nemandans á við- fangsefninu. Sé þetta ekki til staðar, megnar vonin um góða einkunn eða óttinn við slæma ekki að drífa hann til dáða. Ef einkunnir dygðu til þess að örva námsárangur, væri ekki til áhugaleysi um skólastarf hér á landi, því að próf- um og einkunnagjöfum hefur löngum verið sinnt öðru fremur í skólum hér- lendis. Jón Árnason vellvat'iCji lícmnara. Forráðamönnttm „Forelclrablaðsins“ fannst peir ekki geta látið þetta blað korna fyrir sjónir foreldra, án þess að þeirn væri skýrt frá því ástandi, sem skapazt hefur innan kennarastéttarinnar vegna bágra kjara hennár. Ástandið er ]>aö alvarlegt, að ungir kennarar hugsa nti um það í alvöru að segja lausuin stöðum sínum og leita annarrar arðbærari atvinnu. „Foreldrablaðið“ sneri sér því til Jóns Árnasonar, sem hefttr verið í lattnamálanefnd samtakanna og er i stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík, og bað hann að skýra i fáum orðuni fi'á þessttm málum. Undanfarin ár hefur það í vaxandi mæli verið erfiðleikum bundiS, að fá hæfa starfskrafta að skólum landsins. Með hverju ári hefur aukizt f jöldi þeirra manna, sem ráðnir hafa verið í kenn- arastöður, án þess að þeir hafi lokið þeirri sérmenntun, sem skilyrðislaust á að krefjast af þeim, sem kenna börnum. Það, að Kennaraskóli íslands útskrifar ekki árlega nægilega marga nemendur til að fylla upp í skörðin og að sér- menntaðir kennarar hverfa í sífellt rík- ara mæli til annarra starfa, stafar fyrst og fremst af því, að kennarar hér eiga við svo léleg launakjör að búa, að hlið- stæða þess finnst hvergi meðal annarra menningarþ jóða. Séu launakjör íslenzkra kennara bor- in saman við kjör kennara í öðrum löndum, kemur berlega í ljós, hve hlut- ur okkar er bágborinn. Ég ætla til glöggvunar að bera saman laun barna- kennara hér og í Gentofte í Danmörku, og er þó langt frá, að munurinn sé þar mestur. Byrjunarlaun kennara í Gentofte eru kr. 70.876,20 á ári, á fs- FORELDRABLAÐIÐ 31

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.