Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 4
2
FORELDRABLAÐIÐ OPNAR HÉR LÍTIÐ BRÉFA-
HORN. BLAÐIÐ VILL GJARNAN SVARA NOKKR-
UM ALMENNUM SPURNINGUM FRÁ FOR-
ELDRUM, EF ÞESS ER KOSTUR.
Spurning barst um foreldrafundi:
Hvers vegna eru foreldrafundir
einu sinni á vetri?
Skólastjóri Melaskólans, Ingi Kristinsson, var beð-
inn að svara þessari spurningu, en auk Melaskól-
ans eru t. d. Austurbæjarskólinn, Vesturbæjar-
skólinn, Breiðholtsskólinn og Langholtsskólinn
með einn foreldrafund á vetri.
Það eru um það bil tíu ár síðan barnaskólarnir
í Reykjavík tóku almennt upp þann sið að boða til
foreldraviðtala, svonefndra foreldradaga.
Megintilgangur með þessum foreldradögum er
sá að gefa foreldrum eða öðrum aðstandendum
nemenda kost á að koma í skólann og ræða við
kennara barna sinna, svo að þessir aðilar eigi auð-
veldara að hafa samband sín i milli, ef vandamál
koma upp seinna meir.
í Melaskóla hefur sá háttur verið á hafður að
boða til foreldraviðtala einu sinni á hverju skóla-
ári, venjulegast fyrri hluta nóvembermánaðar. Ekki
hefur þótt rétt að hafa þessa fundi fyrr á skóla-
árinu, vegna þess að þeir kennarar, sem taka við
ókunnum nemendum að hausti, þurfa nokkurn tíma
til þess að kynnast þeim áður en foreldradagur-
inn kemur.
Viðtölin hafa oftast verið þannig, að foreldrar
og kennarar hafa talað saman einslega, en á síðari
árum hefur það færzt nokkuð í þá átt, einkum
hjá þeim, sem kenna yngri nemendum skólans, að
kalla alla foreldra barnanna í deildinni samtímis og
skýra fyrir þeim sameiginlega tilhögun kennslunnar-
Síðan er þeim, sem þess óska, gefinn kostur a
einkaviðtölum.
Ingi Kristinsson.