Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 29

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 29
SIGNÝ THORODDSEN sálfræðingur starfar við sálfræðideiId skóla í Reykjavík síðan 1968. Hún lauk stúdentsprófi frá M. R. 1959. Fór þá til náms við háskólann í Kaupmannahöfn og lauk þar kandi- datsprófi í sálar- og uppeldisfræðum 17. júní 1967. Kom síðan heim og hóf rannsóknir í október sama ár við Kleppsspítalann. Hún kenndi við Ljósmæðra- skólann vorið 1968 og Kennaraskóla íslands vet- urinn 1968—'69. að senda í nánari athugun. Ráðstafanir eru síð- an gerðar til þess að barnið fari í sérskóla, ef þurfa þykir, eða í bekkjardeild við sitt hæfi. b) Óvenjulega góðir námshæfileikar (hvort flytja beri barn í betri bekkjardeild eða eldri bekk). c) Ófullnægjandi námsárangur í einni eða fleiri námsgreinum. Algeng ráðstöfun til bóta er þá einhvers konar aukakennsla. d) Taugaveiklun og truflanir á geðheilsu. e) Hegðunarvandkvæði, skróp o. fl. Vandamálin, sem tekin eru til meðferðar hjá sál- fræðideildinni eru margvísleg, þótt þetta yfirlit verði að nægja í stuttri grein. Sálfræðideildin hefur frá upphafi lagt MEGIN- ÁHERZLU Á SAMSTARF VIÐ FORELDRA og forráðamenn barna, og tekur aldrei börn í athug- un, nema með samþykki þeirra, enda vart hugsan- legt að gera skynsamlega athugun á barni og högum þess án náins og vinsamlegs samstarfs við foreldra. Starfsfólk skólanna á þó eðlilega oft frumkvæði að athugun. f þeim tilvikum er venj- an, að kennari eða skólastjóri snýr sér til foreldra og ræðir við þau um vandamál, er hann telur vera fyrir hendi, en foreldrar ákveða síðan, hvort börn- in skuli send í athugun hjá sálfræðideiIdinni og hafa foreldrarnir sjálfir frumkvæði um það. Ann- ars er foreldrum að sjálfsögðu frjálst að snúa sér til deildarinnar án vitundar skólans. Um þriðj- ungur athugunarbeiðna kemur frá foreldrum sjálf- um og er þá ekki leitað samstarfs við skólann, nema vandamálið sé að einhverju leyti tengt skól- anum, og þá með samþykki foreldra. Meginhluti starfs sálfræðideildarinnar fer fram í miðstöð hennar í Tjarnargötu 12. Starfsfólk deild- arinnar heimsækir þó barnaskóla borgarinnar reglu- lega til viðræðna við kennara og skólastjóra. Hef- ur hver samstarfsmaður ákveðna skóla að verk- sviði, og tekur venjulega til meðferðar börn frá þeim skólum, þótt að sjálfsögðu megi breyta því að vild, sé þess óskað af foreldrum eða kennur- um. Rétt er að taka fram, að heimsóknir í skólana eru eingöngu til viðræðna við kennara og skóla- stjóra, en börn ekki tekin til athugunar þar. Sálfræði er sú fræðigrein, sem fjallar m. a. um mannshugann og allt atferli mannsins. Hún er tiitölulega ný fræðigrein, og hafði erfiðar fæð- ingarhríðir eins og aðrar fræðigreinar. Enn eimir eftir af gömlum hugmyndum, sem ef til vill urðu ekki til að ástæðulausu, að sálfræði megi setja á bekk með skottulækningum. Illt er, ef slíkar hug- myndir foreldra valda því, að barn fær ekki lausn á vandamáli, sem ef til vill er auðvelt að leysa. Sálfræði á enn langt í land að verða fullmótuð vísindagrein, en nútíma sálfræðingar gera sér hins vegar fulla grein fyrir takmörkunum hennar, og vita jafnframt, að þeir geta í mörgum tilvikum veitt mikilsverða aðstoð við lausn sálrænna vanda- mála. Að lokum þetta: Geti þessar línur orðið hvatning til foreldra, sem vita um sálræna erfiðleika barns síns, að senda það til athugunar strax, í stað þess að bíða þar til vandamálið er orðið rótgróið, er betur af stað farið en heima setið. Signý Thoroddsen.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.