Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 23

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 23
21 Margrét Margeírsdóttir Forfeður okkar þörfnuðust ekki uppeldis- fræðslu Hversvegna þarf nutímafólk á slíku að halda? Uppeldismál hljóta ávallt að skoðast í Ijósi sam- tímans hverju sinni, eigi að meta gildi þeirra. Þau eru einn þáttur í þeirri heild, sem við nefnum þjóð- líf. Það er margþætt hugtak, sem ekki verður skil- greint hér að öðru leyti en því, að við getum sagt hér okkur til glöggvunar, að í því felist lífsvenjur, atvinnuhættir og viðhorf manna gagnvart sjálfum sér og öðrum. Þegar svara á spurningunni hér að ofan í ör- stuttu máli eins og ætlast er til hér, er vænlegasta leiðin að taka til samanburðar nokkur atriði úr þjóðlífinu fyrr og nú. Varðandi fyrri hluta spurningarinnar, sem gæti bent til þess að forfeður okkar hafi verið fyrir- myndar uppalendur, þykir mér koma fram nokkuð einhliða fullyrðing, sem þó verður varla nokkurn tíma sönnuð né afsönnuð. Víða er þó að finna í bókmenntum, sem fjalla um þjóðlegan fróðleik, miður fagrar lýsingar á uppeldisháttum fyrri tíma. Þar skín sums staðar í gegn vanþekking á andleg- um og líkamlegum þörfum hinnar uppvaxandi kyn- slóðar. Menn veltu ekki vöngum yfir öðrum eins smámunum eins og því, hvort börn þjáðust af ein- hverjum ,,einkennum“, sem að okkar mati myndi ílokkast undir taugaveiklun, svo sem hræðsla, minnimáttarkennd, þunglyndi, svo að eitthvað sé nefnt. Börnum var talið til gildis að vera feimin og hlédræg, og óhlýðni var sannarlega engin dyggð. Líkamlegar refsingar áttu fyllilega rétt á sér. Þann- ig voru viðhorfin og þau voru í takt við tíðarand- ann. Menn vissu ekki betur. En uppeldið hafði að sjálfsögðu sínar jákvæðu hliðar. Það beindist öðru fremur að því að kenna börnum vinnu. Frá blautu barnsbeini urðu þau þátttakendur í störfum full- orðna fólksins, sem höfðu verið með svipuðu sniði kynslóð eftir kynslóð. Hin svokallaða aðlögun barna

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.