Landneminn - 01.02.1948, Page 3
(itgejandi: ÆskulýSsjylkingin — samband ungra sósíalista. Ritstjóri: Jónas Arnason.
2. tölublað
Febrúar 1948
2. Árgangur
Alþjóðasamband lýðræðissinnaðrar æsku
Alþjóðaisamband lýðræðissinnaðrar æsku
(World Federation o£ Democratic Youth) vav
stofnað fyrir rúmum tveimur árum, og er það
oflugusta félagasamband æskulýðsins, sem nokk-
Urn tímann hefur verið starfandi. Innan vébanda
sambandsins munu nú vera um 50 milljónir
^sf'umanna og kvenna. í grein þessari mun
Serð lítilsháttar tilraun til að kynna íslenzkum
^skulýð markmið og starfsemi samtaka þessara,
ehda þótt aðeins verði stiklað á stóru vegna rúm-
]eysis.
Allir ungir menn og konur eiga hinn sama
'ett til að lifa heilbrigðu menningarlífi, og að
l'lióta hin ákjósanlegustu uppvaxtar og þroska-
skilyrði, án tillits til litarháttar, kynþáttar eða
bjóðfélagsaðstöðu. Kröfur æskunnar um mennt-
Un> athafnafrelsi og öryggi eru hinar sömu um
heim allan, Jrótt hinar ýmsu þjóðir sé misjafn-
^ega langt á veg komnar í Jreim málum. Þarfir
^skunnar fyrir skóla, samkomuhúsnæði og aðrav
"tenningarstofnanir eru hinar sömu t. d. í Kína,
Wexikó, Tyrklandi og íslandi. Réttlæti, frelsi
°g sjálfstæði eru hugsjónir æskulýðsins urn heim
■'Oan, og ekkert er jafnfjarri eðli hans og ofbeldi,
^tigun og undirokun. Og unga kynslóðin á fram-
t'ðarhamingju sína undir því, að friður haldist
Uln heim allan.
Hugsjónir þessar tengdu saman lulltrúa þeirra
30 milljón æskmnanna og kvenna, sem'mættu á
Alþjóðaráðstefnu æskulýðsins í London sumarið
1945. Og hinn strangi skóli reynslunnar á stríðs-
árunum hafði kennt æskunni að skilja betur
en fyrr mátt samtaka og samvinnu. A ráðstefnu
Jjessari var ákveðið að stofna alþjóðlegt samband
æskulýðsins, sem væri opið öllum samtökum
ungra manna og kvenna, sem störfuðu á lýðræðis-
grundvelli. Sama haust var svo stofnað formlega
Alþjóðasamband lýðræðissinnaðrar æsku (W. F.
D. Y.).
Markmið sambandsins var að stuðla áð bættri
efnahagslegri, pólitískri og menningarlegri að-
stöðu æskulýðsins, í fullu samræmi við þær að-
stæður er fyrir hendi værii í hverju landi. Að
uppræta síðustu leifar Jrýzka fasismans, og berj-
ast gegn yíirdrottnunarstefnum í hverri mynd
sem Jrær kynnu að birtast. Að vinna að varan-
legum friði og fullkomnu öryggi æskunni til
handa. Að beita sér fyrir eflingu lýðræðisins og
alþjóðlegrar samvinnu. Að gæta hagsmuna æsku
lýðsins í menningar- og Jjjóðfélágsmálum.
Sambandið hefur unnið ötullega að Jrví að
auka kynni æskulýðsins, með Jrví að stuðla að
bréfasamböndum milli hinna ýmsu landa, og
beita sér fyrir gagnkvæmum heimsóknum æsku-
LANDNEMINN 3