Landneminn - 01.02.1948, Síða 14
Knattspyrna
Eftir SNORRA JÓNSSON.
Það er tízka um þessar mund-
ir að tala um íþróttadellu og
sportidióta. Sumir sitja sig aldrei
úr færi að fara háðulegum orð-
um um íþróttir og íþróttamenn
og þykjast menn að meiri. Ég
get ekki varizt þeirri hugsun,
að þeir menn, sem hafa þessi
orð milli tanna, hafi orðið út
undan í æskuleikjum, verið
„stikk og stikk“ í kýluboltaleikn-
um í gamla daga eða svo platt-
fættir, að þeir gátu ekki farið
í saltabrauðsleik og hafa síðan
með aldrinum fengið andúð á'
allri hreyfingu og látið íþróttir
gjalda þess og þá sem geta tekið
hvorn fótinn fram fyrir annan.
Aðrir eru svo miklir í andanum, að þeir leiða
ekki hugann að svo veraldlegum hlut sem líkam-
anum.
Engum ætti að blandast hugur um, að íþrótt-
ir geri unglingum mikið gagn.
Við kynþroskann kernur inn í mannfólkið nýtt
lífsafl, sem þarf að beina inn á heppilegar braut-
ir. Þá er betra, að unglingar eyði orku sinni í
hollan leik, sem veitir ánægju, en þeir eyði henni
í að laumast á næturþeli bakdyrainegin í kram-
búðir til að stela karamellum eða rölti eirðar-
lausir um götur í snjókasti eða æpandi eftir
fólki.
Heilbrigður unglingur þarf eittlivert viðfangs-
efni til að spreyta sig á og því þá ekki íþróttir?
Auk þess hafa menn beint gagn af líkamsþjálf-
un meðan lífsbaráttunni er svo háttað, að menn
verða að treysta rnest á líkams-
Iireysti og vöðvastarf til þess að
geta lifað.
Það syndir enginn með líflínu
til bjargar félögum sínum nema
hann hafi iðkað sund.
Hitt er annað mál, menn geta
gengið upp í íþróttum, fengið
þær á heilann á sarna liátt og t.
d. skák, bridge eða frímerkja-
söfnun. Þeir geta orðið svo mikl-
ir þrælar íþrótta, að innan sjón-
hrings þeirra rúmast ekkert
nema íþróttaafrek, þeir hugsa í
kastlengd, stökkhæð og metum.
En sem betur fer eru beir fáir
sem svo verða, ef rniðað er við
þann fjölda, sem íþróttir stund-
ar sér til ánægju.
Á uppeldisgildi íþrótta, og þá sérstaklega
flokkaíþrótta, leikur enginn vafi og ætti að gera
meira að því að kenna flokkaíþróttir í barna-
skólum í stað þeirrar einhliða leikfimi sem þar
er kennd.
Ein allra vinsælasta íþróttin er knattspyrna,
og hafa flestir yngri menn annaðhvort leikið
hana sjálfir eða séð hana leikna, svo að óþarfi
er að lýsa henni í smáatriðum. Þó eru þeir til,
sem þekkja ekki meir til hennar en svo, að
þeir sjá aðeins nokkra menn hlaupa fram og
aftur eftir knetti og ýmist sparka í hann eða
reka í hann höfuðið. Þeir skilja ekkert í því, að
jafnvel harðfullorðnir menn skuli láta hafa sig
út í þessa vitleysu.
Knattspyrnan á langa sögu að baki. Hjá Forn-
Snorri Jónsson.
14 LANDNEMINN