Landneminn - 01.02.1948, Síða 16
f FYLKINGARFRÉTTIR j
BRÉFASAMBÖND.
Æskulýðsfylkingin vill beita séi' fyrir bréfa-
síxmböndum milli ungra sósíalista, bæði innan-
lands og við erlenda félaga. Þeir sem kynnu að
vilja taka þátt í bréfaskiptunum geta snúið sér
til skrifstofu Æskulýðsfylkingarinnar, Þórsgötu
1, sem mun lxafa á liendi milligöngu um þetta,
og koma beiðnum um bréfaskipti til réttra aðila.
FRÁ DEILDUNUM.
Æskulýðsfylkingin á Siglufirði liefur nýlega
snúið sér til annarra pólitískra æskulýðsfélaga
á staðnum, og farið þess á leit, að þau beittu
sér sameiginlega fyrir framkvæmdum í sund-
laugamálum bæjarins. Aðstaða til sundiðkana
liefur engin verið {rar, en væntanlega verður
nú hafizt handa um að bæta úr því. Félagsstarf
Iiefur verið fjörugt Iijá Æ.F.S., og hafa skenxmt-
anir og fundir verið vel sóttir og tekizt ágæt-
lega. Einnig hafa verið tafl- og spilakvöld við
góðar undirtektir.
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík hefur ákveðið
að gerast aðili að væntanlegum samtökum æsku-
lýðsfélaganna um byggingu æskulýðshallar. Verð-
ur stofnþing þessara samtaka lialdið 28. febrúar
n.k., og er til þess boðað fyrir forgöngu Bræðra-
lags, kristilegs félags stúdenta. Hefur verið birt
ályktun um stofnun sambands þessa, og var hún
undirrituð af formönnum 27 æskulýðsfélaga.
Myndun þessara samtaka er stæi'sta skrefið, sem
stigið hefur verið í áttina til raunhæfi'a fram-
kvæmda í máli þessu. Starf Æ.F.R. hefur vérið
gott í vetur. Auk félagsfunda hal'a verið haldn-
ir nokkrir skemmtifundir og kvöldvökur. og
liafa tekizt með ágætum. Þá hefur skíðaskáli fé-
lagsins verið tekinn í notkun, og er mikil þátt-
taka í skíðaferðunum. Málfundahópuf hefur
starfað í vetur eins og að undanföxnu, einnig
eru starfandi nokkrir leshringir á vegum félags-
ins.
Æskulýðsfylkingin í Hafnaríirði hefur tekið
þátt í viðræðufundum pólitísku æskulýðsfélag-
anna þar, um að knýja fram lækkun á fargjöld-
um námsfólks með áætlunarferðum milli Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar. Er þess að vænta að á-
er norðlenzkur að ætt, fædd-
ur 27. marz 1919. Valtýr hefur ekki stundað list-
nám við neinn skóla, en notið tilsagnar ýrnissa
góðra listamanna, sem liann hefur komizt í kynni
við, bæði liér heima og erlendis. Valtýr er mjög
viðförull maður, var t. d. um skeið í siglingum.
A stríðsárunum dvaldist hann um 2 ár í Banda-
ríkjunum og tók þá m. a. þátt í samsvningu
ungra listamanna í Boston. Önnur sýning, sem
hann tók þátt í, var septembei'sýningin s. 1.
haust.
framhald veiði á samvinnu þessara félaga, og
þau láti til sín taka ýms önur hagsmunamál
liafnfirzkrar æsku. Málfundir og félagsfundir
hafa verið reglulega í vetur. Einnig hefur Æ.F.FI.
gengist fyrir skemmtifundum í samstarfi \áð
Sósíalistafélagið.
Nýlega var haldinn aðalfundur Æskulýðsfylk-
ingarinar á Akureyri. Meðlimatala félagsins
hafði aukizt á árinu, og starfsemin verið aukin
verulega. Félagsfundir hafa verið margir, og
skemmtifundir og skemmtanir hafa verið vcl
sóttar og vinsælar.
Félagið hefur haft starfandi málfundahóp
innan sinna vébanda, og hafa þar komið fram
margir efnilegir ræðumenn. Einnig er nýlega
tekinn til starfa leshringur á vegum félagsins,
og hefur hann fyrst tekið til meðferðar sjálf-
stæðismálið. Síðar í vetur munu svo verða tekin
|)ar fyrir fleiri viðfangsefni.
Einnig sér Æ.F.A. um æskulýðssíðu í Verka-
manninum, málgagni sósíalista á Akureyri, og
kemur hún hálfsmánaðarlega.
Hina nýju stjórn Æskulýðsfylkingarinnar á
Akurevri skipa: Þorsteinn Jónatansson, formað-
ur; Jóhann Axelsson, varaformaður; Jóhanna
Björnsdóttir, ritari; Jóhannes Hermundarson,
gjaldkeri, og Snorri Jónsson, meðstjórnandi.
16 LANDNEMINN