Landneminn - 01.12.1952, Qupperneq 21
samkomulagi sem fyrst og áður en það er orðið of
seint.“
H. Martin færir sönnur á, að forsendurnar fyrir
skráningu hans í flotanum eru brostnar. Hann sækir
þessvegna um að verða sendur heim. En hann fær
ekki svar. önnur og þriðja tilraun eru einnig árang-
urslausar. En að lokum heppnast honum að komast
burt úr þessu helvíti og 11. desember 1947 kemur
hann til Marsailles á Frakklandi.
★
í þeim bréfköflum llenris, sem birtir hai'a verið,
getur maður greinlega fundið, hvernig hinn ungi lið-
þjálfi þroskast í baráttumann fyrir friðnum.
Til að byrja með kynnir hann okkur blátt áfram
staðreyndina um stríðið. Maður heyrir um hörmung-
arnar og smátt og smátt sér maður, hvernig Henri
harnar í deiglunni og kemst að þeirri niðurstöðu, að
nýlendustríðið í Viet Nam er óréttlátt og glæpsam-
legt. Hann skildi samhengið.
Það er þessvegna eðlilegt, að hann skuli strax við
heimkomuna byrja að upplýsa franska alþýðumenn
og hermenn um sannleikann á hinu hataða stríði. Það
varð að stöðva þetta stríð og Henri Martin var ákær-
andinn. Hann yfirgaf ekki flotann og var staðsettur í
birgðastöðvum flotans í Toulon, eftir mikla forfröm-
un. Þarna byrjaði hann að starfa að miklurn krafti.
Vorið 1949 var leyniblaði dreift í Toulon, þar sem
stríðinu í Viet Nam var mótmælt og sjóliðarnir hvatt-
ir til þess að leggja niður vopn. Þegar blaðið „Le
petit Varois“ var bannað í stöðvum flotans, sem á-
róður gegn föðurlandinu, segir meðal annars í einu
leyniblaðinu: „Maður grefur ekki undan móralnum
í her, sem berst fyrir réttlátu málefni. En með því að
banna blaðið „Le petit Varois“, er þess farið á leit,
að bað sé þagað yfir því stríði, sem er á móti æru
hersins.“
Á öðrum stað segir einnig: „Allir Frakkar verða
að sameinast um þessar kröfur. 1) Endurskoðuð sé af-
staðan til Ho Chi Minh, sem er hinn eini sanni full-
trúi fyrir þjóð Viet Nam.
2) Gerður sé endir á stríðið í Viet Nam, sem am-
erískir heimsveldissinnar vilja gera að upphafi að
nýju heimsstríði. Þannig hélt þetta leyniblað áfram
göngu sinni.
★
Uppgiafarfriðill (en tidligere alfons) að nafni Lie-
bert ræður sis: einn dag á sömu birgðastöð og Henri.
Það er nú hægt að leggja fram sannanir, að hann var
ráðinn sem njósnari flotalögreglunnar, til þess að
komast fyrir hjá sjóliðunum, hverjir stæðu að leyni-
blaðinu.
Þetta blað hafði nú gengið í borgínni í eitt ár og
fengið góðan hljómgrunn, sérstaklega hjá sjóliðunum.
En slíka mótspyrnu varð að kæfa. Þannig átti að nota
þennan lífsleiða friðil, til þess að komast í samband
við útgefendur blaðsins.
En hann varð að ávinna sér traust hjá sjóliðunum,
— hvernig átti hann að fara að því. •— Það var bann-
að að flytja öl um borð í flugvélamóðurskipið „Dix-
mude“. Liebert kemur því þannig fyrir, að öli er
smyglað um borð eina nóttina ,þegar hann stendur
vörð og hann er settur í fangelsi fyrir vikið. Sjóliðar
mótmæla, en það stoðar ekkert. Liebert fær 20 daga
fangelsi, þegar liann kemur aftur úr fangelfinu, taka
félagar hans hjartanlega á móti honum. Þessii 20 dag-
ar urðu vissulega til þess að vekja traust á Liebert.
Fyrsta fórnardýr Lieberts varð Charles Heimburg-
er frá Elsass, sem hafði verið neyddur til þess að
ganga í her nasista á sínum tíma, en strauk þaðan
áður en stríðinu lauk. Hann hataði stríð og var leið-
ur á lífinu sem sjóliði og revndist Liebert auðvelt að
hvetja Heimburger til ákveðins skemmdarverks, sem
hann sagðist hafa á prjónunum. Þeir gerast trúnað-
armenn hvors annars. Þannig kemst Liebert á snoðir
um Henri, sem hafði vfir Heimburger að segja í frið-
aráróðri beirra. Henri er handtekinn.
En Liebert og Heimburger vinna áfram að undir-
búningi fkemmdarverksins. Það vill þó svo einkenni-
lega til, að skemmdarverkið er uppgötvað, áður en
það er framkvænit, einmitt á þeim tíma, sem Henri
hefur verið í fangelsi í fimm vikur.
Það er gengið hart að Heimburger við yfirhevrslu
að fá hann til þess að lvsa bví vfir, að Henri hafi
verið í vitorði með beim Liebert. Á sama tíma vitnar
Liebert, að hann hafi verið viðstaddur samtal, þar sem
Heimburger var hvattur af H. Marlin.
Þannig mvndast sú ákæra á móti H. Martin, að hann
hafi gert tilraun til þess að siðspilla hernum og sé
einnig samsekur í skemmdarverki.
★
Réttarhöldin gegn H. Martin og Ch. Heimburger
voru haldin í okt. 1950, í Toulon og stóðu í 3 daga.
Það mátti hegar siá í uppbafi þeirra að Henri sýndi
mikinn persónuleika. Hann liafði notað tímann í fang-
elsinu til hess að lesa bækur eftir Lenin og Thorez
og skrifaði í einu bréfi sínu:
„Verkamenn Viet Nam eru bræður vorir. Ég er fús
Framh. á bls. 94.
LANDNEMINN 85