Unga Ísland - 01.09.1918, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 01.09.1918, Blaðsíða 6
70 UNGA ÍSLAND Abdul stýrði ríki sínu í mörg ár og varð sá vitrasti þjóðhöfðingi, sem setið hafði að ríkjum í Bagdað. (G. D. þýddi). Fiskarækt hjá Kínverjum. Hvergi á jörðunni er eins þéttbýlt og í Kína. Það kemur til af þvi, að Kínverjar rækta svo vel landið sitt. í þéttbygðustu héruðunum er hvergi óræktaður blettur. Á milli býlanna er landið eins og aldingarður. En Kínverjar gera meira en rækta landið, þeir rækta vötnin líka — ala upp fiskana í ám, tjörnum og stöðuvötn- um og gera þá sér undirgefna. Ríkið á flestar veiðiár og stöðu- vötn í Kína og leigir veiðina einstök- um mönnum með vissum skilmálum. Það kostar umsjónarmenn, sem hafa á hendi eftirlit jpeð veiðinni í vötn- unum. Þeir hafa gætur á því, að enginn veiði á þeirn tíma árs, sem fiskurinn er friðaður. Friðunartíminn er að jafnaði frá aprílmánuði til september ár hvert, eða í 5 mánuði. í sumum völnum má þó ekki veiða 6—7 mánuði og í einstaka vatni má veiða næstum alt árið um í kring. Umsjónarmennirnir sjá 'um það, að enginn veiði á þeim tíma, sem fisk- urinn hrygnir. Þegar fiskurinn er búinn að gjóta hrognunum, safna menn þeim saman og flytja í önnur vötn, sem búið er að tæma að fiski. Sumstaðar er fisk- seiðunum safnað í ánum og alin upp á öðrum stöðum, einkum í tjörnum, sem búnar eru til af manna hönd- um; þar eru þeir fóðraðir og aldir upp^eins^og húsdýr. Mest er ræktað af fiski, sem heitir Yong-yu. Hann er alinn upp í til- búnum fiskatjörnum. Hann verður 20 —25 kg á þyngd og er mjög góður til átu. í' Kína eru seld fiskseiði fyrir minst 2 miljónir króna á ári. Þeir, sem búa til fiskatjarnir, geta fengið keypt nýklakin seiði til að ala upp. Fiskseiðin má senda landshornanna á milli í þar til gerðum vatnsílátum. — Veiðiumsjónarmaðurinn í hverju héraði er látinn sitja fyrir kaupunum á ungfiskinum. Hann sleppir flestum seiðunum í ár og stöðuvötn. Það, sem afgangs verður, lætur hann í stóra vatnsgeyma, þar fóðrar hann seiðin með baunadeigi, brauði o. s. frv. Þegar fiskarnir eru orðnir 4—8 cm langir, eru hinir stóru aðskildir frá þeim minni og seldir, 100—1000 í einu, til þeirra manna, sem eiga fiskatjarnir. Þar sem fiskar eru aldir upp í tjörnum, verða þeir fljótt spakir og tamdir. Þeir hópa sig á þann stað, sem þeim er vanalega gefið, og fylgja manninum eftir, sem gengur eftir tjarnarbakkanum og gefur þeim. Þeir, sem eiga fiskatjarnir í Kina, græða á þeim stór’fé. Það, sem þeir ekki þurfa af fiski til heimilisnota, er se!t öðrurn. Sagt er, að prestur nokkur kaþólsk- ur i Kína hafi átt liskaljörn, sem gaf árlega af sér 800 krónur, fyrir utan það, sem hann notaöi af fiski úr henni handa heimili sínu. Guðm. Daviðsson,

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.