Unga Ísland - 01.10.1918, Blaðsíða 3

Unga Ísland - 01.10.1918, Blaðsíða 3
UNGA ÍSLAND 75 að hún naggrar við klöpp. Glaðnar þá dálítið yfir kóngssyni, því hann liugsar, að þetta muni vera land, heldur en sker. Honum kemur nú til hugar, að reyna að spyrna botninn úr tunnunni, því hann var dálítið syndur. Hann ræður þetta af, þó hann hinsvegar væri hræddur um slæma landtöku. En það var öðru nær, því sléttar klappir voru þar við sjóinn, svo honum gekk vel að komast á land; en há björg voru fyrir ofan. Vill hann nú komast eitthvað upp frá sjónum, þótt torsótt sýndist, og gengur stundar- korn fram með björgunum, þar til hann fer að reyna að klifra upp, og tekst honum það um síðir. Þegar hann er kominn upp, lilast hann um, og sér, að það er ey, sem liann er i kominn. Hún var skógi vaxin og frjósöm, og sá hann þar vaxa epli, góð átu. Þótti hon- um þarna skemtiiegt, að því er landið snerli. Þegar hann hafði verið þar nokkra daga, heyrði liann eitt sinn hark mikið í skóg- inum. Varð hann þá ákaf- lega hræddur og hljóp í skóginn, til að reyna að fela sig. Hann sér nú, hvar risi kemur með viðarsleða og stefnir á hann. Hann hafði þá engin önnur ráð, en að fleygja sér niður, þar sem hann stóð. þegar ris- inn fann hann, stóð hann dálitla slund kyrr og horfði á kóngsson. Siðan tók hann hann í fang sér, bar liann heim til sín, og var honum óvenjulega góður. Gefur hann nú sveininn kerlingu sinni, er var því nær karlæg; kvaðst hafa fundið barn þetta í skóginum, og skyldi hún hafa það til vika í kringum sig. Kerlingu þótti ósköp vænt um þetla, og fór að klappa kóngssyni með miklum blíð- mælum. Hann dvelur nú þarna hjá þeim, og er mjög þægur og eftirlátur í öllu, er þau beiddu hann, enda voru þau honum hvern daginn öðrum betri. Einn daginn fer risinn með hann og sýnir honum í allar hirzlur sínar, nema i eldaskálann. Af þessu kom forvitni í kóngsson, til að sjá elda- skálann; því hann hugsaði, að þar •væri einhver fáséð gersemi inni. Einn dag, þegar risinn var farinn á skóg, fer kóngsson og ber sig að ná upp eldaskálanum, og kemur hurð- inni í hálfa gátt; sér hann þá að eitt- hvert kvikindi liristir sig, hleypur fram eftir gólfinu og talar eitthvað. Kóngsson hrekkur nú öfugur frá hurð- inni, skellir lienni aftur og pissar í buxurnar af hræðslu. þegar heldur fór að renna af honum hræðslan, ræður hann til aftur, þvi hann hafði gaman af að heyra, hvað það segði; en það fór aftur á sömu leið og fyr.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.